Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

6 milljarða skattaspor sjókvíaeldis

Read Full Article →

Sjókvíaeldisfyrirtækin fimm á Íslandi framleiddu 44 þúsund tonn á árinu 2024. 66% framleiðslunnar var á Vestfjörðum og 34% á Austfjörðum. Launakostnaður fyrirtækjanna sama ár var 7,3 milljarðar króna með lífeyrissjóðsgreiðslum, öðrum launatengdum gjöldum og hlunnindum. Þrátt fyrir aukna framleiðslu og meiri veltu hefur verið tap af rekstrinum síðastliðin þrjú ár. Þetta er meðal þess sem lesa má úr skýrslu KPMG sem gerð var fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi seint á síðasta ári. Um er að ræða fyrirtækin Kaldvík, sem framleiddi 15.000 tonn, Arnarlax, 12.000 tonn, Arctic Fish, 11.000 tonn, Háafell, 7.000 tonn og Hábrún innan við 1.000 tonn á árinu 2024. Heildarframleiðslan var 37.000 tonn árið 2022, 35.000 tonn 2023 og fór svo í 44.000 tonn 2024. Velta fyrirtækjanna hefur aukist um 7% að jafnaði á undanförnum tveimur ár og nam 48 milljörðum árið 2024. Á síðustu þremur árum hafa félögin fimm fjárfest fyrir tæpa 33 milljarða króna. Skattaspor 6 milljarðar – helmingur til ríkis Í skýrslu KPMG kemur fram að skattaspor sjókvíaeldis á árinu 2024 var rúmir 6 milljarðar króna. Þar af runnu 3.210 milljónir króna til ríkisins, 1.696 milljónir til sveitarfélaga og 1.108 milljónir króna til lífeyrissjóða. Þar segir einnig að 37% af skattaspori ársins 2024 séu sértækir skattar og gjöld á atvinnugreinina, alls 2.213 milljónir króna. Þar er um að ræða leyfis- og framleiðslugjald (fiskeldisgjald), kolefnisgjald, hafnargjald og gjald í umhverfissjóð. 52% af skattasporinu eru skattar vegna launafólks. Alls nemur skattaspor sjókvíaeldis á árunum 2022 til og með 2024 13.749 milljónum króna. Skattaspor ársins 2024 var 6.014 milljónir króna sem er jafngildir 75% hækkun frá árinu 2022, þegar skattasporið var 3.434 milljónir króna. Fiskeldisgjald 52,5 kr./kg Fiskeldisgjald hefur verið innheimt frá því í ársbyrjun 2020. Það hefur verið innleitt í áföngum til ársins 2026 þegar áhrif þess verða að fullu komin inn í rekstur félaganna. Árið 2020 var það 1,87 kr./kg en hefur hækkað í 52,50 kr./kg fyrir síðasta ár þegar það var að fullu innleitt. Útgefin leyfi til fyrirtækja sem stunda sjókvíaeldi er 115 þúsund tonn. Árlegt gjald í Umhverfissjóð nemur 20 SDR, 167 ÍSK, fyrir hvert tonn sem fyrirtæki er heimilt að framleiða. Miðað við útgefin leyfi skilaði gjald í Umhverfissjóð 400 milljónum króna en framleiðslumagn undanfarinna ára hefur einungis numið um 30-40 af útgefnum leyfum. Eldisgjald er innheimt af hafnarsjóðum sveitarfélaga. Þau hafa numið 320-440 milljónum króna á undanförnum þremur árum.

Share this article