Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þörf á kreddu­lausri um­ræðu um lofts­lagsað­gerðir

  • What: Discussion on the EU emissions trading system and its economic implications
  • Impact: European businesses and policymakers
Read Full Article →

Viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, eða ETS-kerfið svokallaða (e. Emissions Trading Systems), hefur mikið verið til umræðu undanfarnar vikur. Í kerfinu eru takmörk sett á heildarlosun fyrirtækja og þurfa þau að eiga heimildir fyrir allri sinni losun. Í gegnum tíðina hafa fyrirtækin fengið úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum að hluta en þurft að kaupa heimildir á markaði ef þau losa meira en sem því nemur. Nokkrir evrópskir leiðtogar, þar á meðal Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, gagnrýndu kerfið fyrr í mánuðinum og kölluðu eftir endurskoðun. Aðrir lögðu til að sett yrði þak á verð losunarheimilda þar sem verð hafði hækkað umtalsvert meira en upprunalegar spár gerðu ráð fyrir. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varði kerfið og sagði að ákvæði væru til staðar í regluverkinu svo hægt væri að bregðast við mikilli hækkun. Framkvæmdastjórnin myndi hafa málið til hliðsjónar við endurskoðun kerfisins, en búist er við að framkvæmdastjórnin leggi fram tillögur um breytingar á kerfinu um mitt þetta ár. Hvað afstöðu Íslands varðar segir í svari utanríkisráðuneytisins að ETS-kerfið hafi verið metin sem skilvirk leið til að draga úr losun á grundvelli þess grundvallarsjónarmiðs að sá sem mengar eigi að greiða fyrir það. „Hins vegar er mikilvægt að framkvæmd kerfisins skapi ekki aðstöðumun á innri markaði EES og að kerfið leiði ekki til kolefnisleka, þar sem starfsemi færist frá EES-svæðinu vegna hærri reglukostnaðar þar. Mikilvægt er að hægt sé að eiga kreddulausa umræðu um loftslagsaðgerðir, en á sama tíma er loftslagsvandinn raunverulegur og krefst aðgerða,“ segir í svari ráðuneytisins. Utanríkisráðherra hafi tekið málið upp á tvíhliða fundum sínum, nú síðast við Wopke Hoekstra, loftslagsmálastjóra Evrópusambandsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skipaði í október starfshóp vegna endurskoðunar á ETS-kerfinu.

Share this article