Viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, eða ETS-kerfið svokallaða (e. Emissions Trading Systems), hefur mikið verið til umræðu undanfarnar vikur. ETS-kerfinu var fyrst komið á fót árið 2005. Í kerfinu eru takmörk sett á heildarlosun fyrirtækja og þurfa þau að eiga heimildir fyrir allri sinni losun. Í gegnum tíðina hafa fyrirtækin fengið úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum að hluta en þurft að kaupa heimildir á markaði ef þau losa meira en sem því nemur. Frá því að kerfið leit fyrst dagsins ljós hefur heildarfjölda losunarheimilda í kerfinu verið fækkað jafnt og þétt. Hér á landi nam kostnaður fyrirtækja vegna kaupa á losunarheimildum 5,5 milljörðum árið 2024 en viðbúið er að kostnaðurinn gæti numið hátt í 30 milljörðum árið 2030. Markaðsverð losunarheimilda hefur hækkað á síðustu árum og náði hámarki í mars 2023, þegar verð á hvert tonn af CO₂ ígildum fór yfir 100 evrur. Það lækkaði þó í kjölfarið og árið 2024 var meðalverð 65 evrur og 73 evrur 2025. Verðið var síðan komið upp fyrir 90 evrur á hvert tonn af CO₂ ígildum um miðjan janúar sl. en lækkaði umtalsvert í kjölfar þess að nokkrir evrópskir leiðtogar gagnrýndu kerfið. Verðið fór niður fyrir 70 evrur í byrjun síðustu viku en hefur hækkað örlítið frá þeim tíma. Spár greiningaraðila um verð á losunarheimildum á komandi árum eru á reiki, en allir eru sammála um að verð muni hækka. Samkvæmt könnun Reuters sem birtist í lok janúar telja greinendur að verð á ETS heimildum verði að jafnaði tæplega 93 evrur árið 2026 og rúmlega 107 evrur árið 2027. Spá ráðgjafafyrirtækisins GMK Center frá því í nóvember 2025 reiknaði með því að verð á losunarheimildum í ár yrði 85 evrur, 100 evrur árið 2027, 115 evrur 2028, 120 evrur 2029 og árið 2030 er reiknað með að verð á losunarheimildum verði komið upp í 126 evrur. Í september spáði BloombergNEF að verð losunarheimilda gæti farið upp í 122 evrur árið 2030 og yrði að meðaltali 99 evrur árin 2027 til 2029. Spá ABN Amro er hærri, en hollenski bankinn reiknar með því að verð á losunarheimildum gæti numið 145 evrum árið 2030 og 200 evrum árið 2035. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér .