Vetrarólympíumót fatlaðra verður sett í Cortina á Ítalíu á föstudagskvöld. Stríðsátök á milli nokkurra þátttökuþjóða hafa þó orðið til þess að vaxandi spenna er fyrir setningarhátíðina. Mótið heitir Paralympics sem við myndum beinþýða á íslensku sem Samhliðaleikana en höfum í gegnum tíðina kallað Ólympíumót fatlaðra. Rússland og Belarús fengu ekki að keppa undir þjóðfánum sinna ríkja á Sumarólympíuleikunum í París árið 2024 né á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í síðasta mánuði. Né heldur á Vetrarólympíumóti fatlaðra 2022 í Beijing eða í París 2024 vegna stríðsreksturs Rússa í Úkraínu sem stjórnvöld í Belarús styðja við. Þessi ríki verða hins vegar fullgild á Ólympíumótinu sem hefst á föstudag. Úkraína sagði um leið og sú ákvörðun lá fyrir að fulltrúar Úkraínu myndu þá ekki taka þátt í setningarhátíð mótsins. Bretland, Kanada, Holland, Pólland og Finnland hafa svo einnig lýst því yfir opinberlega að þau muni líka sniðganga setningarhátíðina. Þá hafa Ítalir sem halda mótið lýst því yfir að þeir séu andsnúnir þátttöku Rússlands og Belarús undir eigin fánum á mótinu. Ísland mótmælti en sniðgengur ekki Það hefur Ísland líka gert en fulltrúar Íslands munu þó ekki sniðganga setningarhátíðina. Ísland á einn keppanda á Ólympíumótinu, Örnu Sigríði Albertsdóttur sem keppir í skíðagöngu. Arna Sigríður verður jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að keppa á Ólympíumóti fatlaðra bæði að sumri og vetri, því hún keppti í handahjólreiðum í Tókýó sumarið 2021. „Við vorum samstíga í því með hinum Norðurlöndunum á aðalfundi IPC í haust að kjósa gegn því að Rússar fengju að keppa undir eigin fána þannig að afstaða okkar er skýr. En við verðum að lúta lýðræðinu og niðurstöðu kosningarinnar í því að Rússar fái að keppa,“ sagði Jón Björn Ólafsson framkvæmdastjóri Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) við RÚV í dag. Ísland mun því taka þátt í setningarhátíðinni á föstudag þrátt fyrir andstöðu sína við þátttöku Rússlands. „Arna Sigríður og okkar teymi mun reyndar ekki vera viðstödd setningarhátíðina sem verður í Cortina. Íslenska sveitin gengur inn í Predazzo þar sem skíðagangan verður og það verður tekið upp og skeytt inn í útsendinguna á setningarhátíðinni.“ Alls taka 56 ríki þátt á Vetrarólympíumóti fatlaðra á Ítalíu. Mótið verður eins og fyrr segir sett á föstudagskvöld klukkan 19:00. Setningarathöfnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV 2. Keppni hefst svo degi síðar og verður sýnt frá fjölda viðburða á mótinu á rásum RÚV sem má skoða nánar í viðburðadagatalinu .