Í síðustu viku staðfesti Alþjóða íþróttasamband fatlaðra að sex Rússum og fjórum Belarúsum yrði leyft að keppa undir sínum þjóðfánum á Vetrarólympíumóti fatlaðra á Ítalíu 6.-15. mars næstkomandi. Á nýafstöðnum Vetrarólympíuleikum kepptu íþróttamenn frá þessum löndum undir hlutlausum fána. Þetta verður í fyrsta sinn sem fána Rússlands verður flaggað á stórum íþróttaviðburði eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu fyrir fjórum árum. Úkraínumenn hugðust ekki taka þátt í leikunum af þessum ástæðum en tilkynntu svo að þeir myndu ekki taka þátt í setningarhátíðinni og kærðu sig ekki um að fána þeirra væri flaggað þar. Finnar, Tékkar, Eistar, Lettar og Pólverjar hafa staðfest að þeir muni heldur ekki mæta á setningarhátíðina. Þá hyggst finnska ríkisútvarpið ekki sýna frá athöfninni heldur. Ísland á einn keppanda á mótinu, Örnu Sigríði Albertsdóttur sem keppir í skíðagöngu.