Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íþróttabanni Belarús aflétt

  • What: Belarus athletes are no longer banned from international sports competitions.
  • Impact: Allows Belarus to participate under its own flag.
Read Full Article →

Framkvæmdastjórn Aljóðaólympíunefndarinnar (IOC) hefur aflétt öllum takmörkunum á þátttöku íþróttafólks frá Belarús í alþjóðlegu íþróttastarfi. Rússneskir íþróttamenn verða hins vegar áfram að keppa undir hlutlausum fána þar til laganefnd IOC hefur lokið endurskoðun sinni á stöðu Rússlands. Ákvörðunin var kynnt eftir fund framkvæmdastjórnar IOC í Lausanne í Sviss í gær. Forseti nefndarinnar, Kirsty Coventry, sagði að ekki væri lengur mælt með neinum hömlum á þátttöku íþróttamanna frá Belarús eða landsliða í mótum á vegum alþjóðlegra sérsambanda eða skipuleggjenda stórviðburða. Ekkert ákveðið með Rússa enn Með þessu opnast leið fyrir Belarús til að snúa aftur til fullrar þátttöku undir eigin fána og þjóðsöng, meðal annars í undankeppni og keppni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028. Fram að þessu hafa íþróttamenn frá Belarús aðeins fengið að keppa sem svokallaðir hlutlausir einstaklingar á Ólympíuleikunum í París 2024 og Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina 2026. IOC bannaði bæði Rússlandi og Belarús fulla þátttöku í alþjóðlegu ólympíustarfi eftir innrás Rússa í Úkraínu árið 2022, sem Belarús studdi. Þrátt fyrir ákvörðunina um Belarús er Rússland enn undir refsiaðgerðum vegna tengsla rússnesku ólympíunefndarinnar við hernumin svæði í Úkraínu. Vilja að allt íþróttafólk geti keppt Coventry sagði að laganefnd IOC væri enn að fara yfir stöðu rússnesku ólympíunefndarinnar og að niðurstaða hennar lægi ekki fyrir. Hún lagði áherslu á að hlutverk IOC væri að tryggja pólitískt hlutleysi í íþróttum og að markmiðið væri að gera öllum íþróttamönnum kleift að taka þátt. „Við viljum að allir íþróttamenn geti keppt og þessi ákvörðun endurspeglar það,“ sagði Coventry á blaðamannafundi. Andstaða úr einhverjum áttum Ákvörðun IOC hefur þegar mætt andstöðu frá sumum alþjóðlegum sérsamböndum. Alþjóðafrjálsíþróttasambandið (World Athletics) sagði í yfirlýsingu að bann við þátttöku rússneskra og hvítrússneskra keppenda í frjálsíþróttum, sem sett var á árið 2022, yrði áfram í gildi þar til raunverulegar friðarviðræður hæfust vegna stríðsins í Úkraínu. Þrátt fyrir bann IOC tóku alls 32 íþróttamenn frá Rússlandi og Belarús þátt á Ólympíuleikunum í París árið 2024 undir hlutlausum fána og unnu þar fimm verðlaun, þar á meðal eitt gull.

Share this article