Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Munu Rússar taka þátt í Ólympíuleikunum í LA?

Read Full Article →

Sífellt fleiru íþróttafólki frá Rússlandi og Belarús er veittur fullur keppnisréttur í alþjóðlegri íþróttakeppni. Bann var sett á þjóðirnar eftir innrás Rússa í Úkraínu. Sérfræðingur í íþróttapólitík telur líklegt að Rússar keppi undir eigin merkjum á Ólympíuleikunum eftir tvö ár. Rússar höfðu fullan keppnisrétt á Ólympíumóti fatlaðra í síðasta mánuði og í gær gaf Alþjóða sundsambandið Rússlandi og Belarús aftur grænt ljós á þátttöku. En eru málin þá að þróast í þá átt að Rússland og Belarús hafi fullan þátttökurétt á ÓL í Los Angeles 2028? Alþjóða íþróttahreyfingin útilokaði Rússland og Belarús strax en ekki aðrar þjóðir sem standa í stríðsrekstri. Staðan er svo snúin með Bandaríkin sem eru komin á fullt í vígbúnaði, en þar verða næstu ÓL haldnir auk HM karla í fótbolta.

Share this article