„Auðvitað er þetta mjög erfiður og verðugur andstæðingur. En við erum bara spenntar fyrir áskoruninni,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins um leikinn við Spán í undankeppni HM kvenna í fótbolta í dag. „Við höfum reynt að nýta æfingarnar eins vel og við getum í að samstilla okkur í það sem við ætlum að gera í leiknum,“ segir Glódís, en hvernig er planið í leiknum gegn sjálfum heimsmeisturunum? „Við verðum að spila góðan varnarleik því við verðum mun minna með boltann. En svo þurfum við að nota svæðin fyrir aftan þær vel þegar við vinnum boltann.“ Leikur Spánar og Íslands hefst klukkan 18:00 á RÚV. „Það er lítil pressa á okkur og mikil á þeim. Þannig að við getum farið inn í þennan leik með axlirnar niðri og notið þess að spila varnarleik og strítt þeim þannig.“