Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Read Full Article →

Samfylkingin mælist með mest fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup en tapar fylgi á milli kannana. Flokkurinn mælist nú með 28,5% en mældist með 31,2% í janúar. Miðflokkurinn mælist næst stærstur og er með svipað fylgi og í síðustu könnun, rúm 20%. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig prósentustigi frá síðustu mælingu og mælist nú með 18,1%. Litlar breytingar eru á fylgi Viðreisnar og Flokks fólksins á milli kannana, fylgi Viðreisnar dregst lítillega saman og Flokkur fólksins bætir við sig innan við prósentustigi. Viðreisn mælist með tæp 11% og Flokkur fólksins tæp 6%. Vinstrihreyfingin grænt framboð og Framsóknarflokkurinn bæta bæði við sig rúmu prósentustigi milli kannana. VG mælist nú með 4,2% fylgi og Framsóknarflokkurinn með 6,6%. Þjóðarpúls Gallup Netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. febrúar - 1. mars 2026. Heildarúrtaksstærð var 9.958 og þátttökuhlutfall var 44,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Fleiri kannanir og greiningar má finna á ruv.is/kosningar . Næstum 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa og tæplega 14% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Yrðu þetta niðurstöður kosninga myndu aðeins Samfylking og Miðflokkur bæta við sig þingsætum frá kosningunum í árslok 2024. Samfylkingin fengi 20 þingmenn en er með 15 og Miðflokkurinn 14 þingmenn en er með 8. Sjálfstæðisflokkur fengi 13 þingmenn en er með 14, Viðreisn fengi 8 þingmenn en er með 11, Framsóknarflokkurinn fengi 4 en hefur nú 5, Flokkur fólksins fengi 4 en er með 10. 40% 35% 30% S 25% M 20% D 15% C 10% B F 5% V P J 0% feb ‘25 apr ‘25 jún ‘25 ágú ‘25 okt ‘25 des ‘25 feb ‘26 Stuðningur við ríkisstjórnina er líka mældur í Þjóðarpúlsi Gallup með sérstakri spurningu. 52% segjast nú styðja ríkisstjórnina en 55% sögðust styðja hana í janúar. Stuðningur við ríkisstjórnarflokkana samanlagt dregst líka saman, er nú 45% en var 48%.

Share this article