Landsvirkjun gaf út fyrir helgi ársskýrslu með nýstárlegu sniði en í fyrri hluta hennar má finna viðtöl við starfsfólk um starfsemi ársins. Í seinni hluta skýrslunnar er meðal annars sjálfbærnitafla með upplýsingagjöf um ýmsa rekstrarþætti. Í ársskýrslunni er farið yfir helstu þætti starfseminnar á árinu, þar á meðal orkuvinnslu og rekstur, raforkumarkaði, orkuöryggi og loftslags- og umhverfismál. Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar segir í ávarpi að 2025 hafi markað tímamót fyrir fyrirtækið en Landsvirkjun varð 60 ára á nýliðnu ári. „Frá stofnun árið 1965 hefur Landsvirkjun gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags. Með nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda hefur verið byggt upp raforkukerfi sem er undirstaða verðmætasköpunar, atvinnulífs og þeirra lífskjara sem við njótum í dag. Raforkan er forsenda nútímasamfélags og skiptir sköpum fyrir öryggi og stöðugleika þjóðarinnar.“ Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í sínu ávarpi að rekstur hafi gengið vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður og sveiflur í ytra umhverfi. „Við stöndum á tímamótum. Ákvarðanir dagsins í dag munu hafa afgerandi áhrif á orkuöryggi, samkeppnishæfni og lífskjör á Íslandi í framtíðinni. Landsvirkjun tekur ekki þær ákvarðanir ein, en við erum reiðubúin til þess að herða róðurinn enn frekar, ef skýrt ákall og umboð kemur frá þar til bærum aðilum.“