Innlent | mbl | 3.3.2026 | 20:21 Segir þingmennina hafa meiri áhuga á öðru en Norðausturkjördæmi Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Setja bókamerki Hvernig opinn íbúafundur þróaðist á Seyðisfirði í síðustu viku með þingmönnum Samfylkingarinnar Loga Einarssyni, sem einnig er menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Eydísi Ásbjörnsdóttur kom kannski ekki beint á óvart að sögn Jóns Halldórs Guðmundssonar, aðalmanns í heimastjórn Seyðisfjarðar. Um var að ræða hitafund þar sem harðlega var gagnrýnd ákvörðun um að færa Fjarðarheiðargöng aftar í forgangsröðun jarðganga á Íslandi. Jón Halldór segir fundinn þó hafa verið gagnlegan. Frétt af mbl.is Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Fengu að heyra viðhorf íbúa „Ég held að þau hafi fengið alveg að heyra það hvernig viðhorf íbúa Múlaþings og Seyðisfjarðar eru í þessu máli. Logi sagði eitt merkilegt. Hann sagði að hann myndi styðja niðurstöðu umhverfis- og samgöngunefndar þar sem málið er núna. Hann var að reyna að verja og skýra sína afstöðu en samt segist hann myndu styðja þær breytingar sem umhverfis- og samgöngunefnd gerir á samgönguáætluninni,“ segir Jón Halldór. Þar vísar hann til þess að samgönguáætlun Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra hafi gengið til umhverfis- og samgöngunefndar en Seyðfirðingar og íbúar Múlaþings og víðar eru vægast sagt ósáttir við að Fjarðarheiðargöng hafi verið færð úr efsta forgangi jarðgangaáætlunar og látin lönd og leið. Frétt af mbl.is „Við erum rosalega hissa“ Ekkert annað rætt Jón Halldór vekur athygli á því að um hafi verið að ræða opinn fund með tveimur þingmönnum. Samt hafi ekkert annað mál verið rætt á fundinum. „Það er eiginlega synd að við skulum ekki geta komist í að tala um ýmislegt annað sem brennur á íbúum Seyðisfjarðar, til dæmis í atvinnumálum.“ Jón Halldór tilkynnti í febrúar að óska ekki eftir endurkjöri í heimastjórn, þar sem hann hefur setið fjögur ár. Hann segir það mál sem heimastjórn hafi eytt mestu púðri í á kjörtímabilinu sé Fjarðarheiðargöng. Í því máli hafi þó nær ekkert gengið nema að sveitarfélagið hafi lokið öllum skipulagsmálum sem snúa að göngunum. „Það eru sex ár síðan við lentum fremst í röðinni. Það var árið 2020 sem Fjarðarheiðargöng urðu fremst í röðinni. Annaðhvort var ekki pólitískur vilji til að fara í framkvæmdir á þessum sex árum eða að ekki var til peningur, t.d. út af Grindavík eða einhverju öðru.“ Spurður hvort hann telji að hægt sé að pota Fjarðarheiðargöngum ofar á listann segist Jón Halldór ekki í vafa um það. „Það er alveg hægt og ég held að það sé bara mjög líklegt. Það er mikill stuðningur við það og þetta er mjög brýnt mál. Ekki bara fyrir þetta byggðarlag, þetta er leið inn í landið og Alþingi er búið að takast á hendur ákveðnar skuldbindingar með því að setja göngin fremst í röðina um langa hríð. Ég sé líka merki um það í skoðanakönnunum um ánægju fólks með samgönguáætlun að það er mikill meirihluti ósáttur við að Fjarðarheiðargöng séu tekin úr þessari röð á landsvísu. Ég held að þetta hafi allt að segja. Þú ert í pólitík til að reyna að leysa málin þannig að allir geti þokkalega við unað.“ Frétt af mbl.is Ráðherra neitaði sveitarstjórninni um fund Ekkert ómögulegt Getið þið komið Fjarðarheiðargöngum aftur fremst? „Það er voðalega erfitt að segja en það er ekkert ómögulegt í þessu og ég held líka að það sé alveg ljóst að fyrst þau ákváðu að gera ekkert með gildandi samgönguáætlun sem var búin að vera samþykkt á Alþingi í mörg ár og töldu sig ekkert bundna af henni, þá er voðalega ólíklegt að næsta ríkisstjórn sem tekur við einhvern tímann að hún sé að einhverju leyti bundin af þessari tillögu sem kemur frá þessum Eyjólfi.“ Jón Halldór segir það hafa verið mjög erfitt fyrir bæjarbúa að upplifa það sem hann vísar til sem blautrar tusku. „Við erum eiginlega bara aðeins að byrja að jafna okkur á þessu núna.“ Hvað fundinn varðar segir Jón Halldór aðalmálið í sínum huga að þingmennirnir skyldu ekki hlusta á raddir fólks. „Ég meina, það er skrítið að við séum hluti af Norðausturkjördæmi og að það séu vissir þingmenn hérna hjá okkur sem fókusera meira á önnur byggðarlög heldur en stærsta sveitarfélagið á Austurlandi. Það er sérstakt.“ Heimastjórn Seyðisfjarðar fundar á fimmtudag og segist Jón Halldór viss um að málefni Fjarðarheiðarganga muni bera á góma í einhverri mynd. „Ég hugsa að það liggi við að talað hafi verið á hverjum fundi um einhverjar hliðar þessa máls.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vinir Coleen Rooney segja fótboltamanninn fávita Segir þingmennina hafa meiri áhuga á öðru en Norðausturkjördæmi Það er erfitt að ráða við þær Ekki einsýnt að dagakerfi hefði áhrif á vottanir Wolves – Liverpool, staðan er 0:0 Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Beint: Bretar senda tundurspilli Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Vinir Coleen Rooney segja fótboltamanninn fávita Segir þingmennina hafa meiri áhuga á öðru en Norðausturkjördæmi Það er erfitt að ráða við þær Ekki einsýnt að dagakerfi hefði áhrif á vottanir Wolves – Liverpool, staðan er 0:0 Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Loftárásir duga ekki einar og sér Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju