Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrir stundu að bandaríski sjóherinn myndi fylgja tankskipum með olíu og gas um Hormuz-sundið ef þörf krefur. „Sama hvað gerist munu Bandaríkin tryggja FRJÁLST FLÆÐI ORKU TIL HEIMSINS,“ skrifaði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Fimmtungur af heimsframboði olíu fer um Hormuz-sundið. Í sömu færslu tilkynnti Trump að hann hefði fyrirskipað U.S. International Development Finance Corporation að veita „tryggingar og ábyrgðir gegn pólitískri áhættu til að tryggja fjárhagslegt öryggi ALLRA sjóviðskipta, sérstaklega orku, sem fara um flóann.“ Aðgerðunum er ætlað til að veita olíu- og gastankskipum sem fara um sundið aukið öryggi. Orkuverð hefur rokið upp síðan Íran varaði við því að það gæti hafið árásir á skip á þessari strategískt mikilvægu siglingaleið. Stutt er frá yfirlýsingu forsetans en olíuverð hefur lækkað nokkuð síðustu klukkustundirnar eftir skarpa hækkun fyrr í dag. Forsetinn hélt blaðamannafund í Hvíta húsinu í dag með með Fridrich Merz kanslara Þýskalands. Þar sagði hann að búið væri að „rota“ íranska herinn.