Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ætla að tífaldast að stærð á 4-5 árum

Read Full Article →

„Þetta er búin að vera ótrúleg vegferð,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth. Á dögunum gengu bandaríski gagnaversrisinn Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board (CPPIB) frá 4 milljarða dala, eða sem nemur um 485 milljörðum króna, kaupum á atNorth Holding AB, móðurfélagi gagnaversfyrirtækisins atNorth, sem er það stærsta hér á landi. Advania Data Centers, sem síðar varð að atNorth, var stofnað fyrir um einum og hálfum áratug síðan og hefur Eyjólfur starfað hjá fyrirtækinu nánast frá upphafi. „Við höfum gengið í gegnum eitt og annað á þessum árum. Vöxtur fyrirtækisins í gegnum tíðina hefur svo sannarlega ekki gerst af sjálfu sér.“ atNorth var áður í eigu svissneska fjárfestingarfélagsins Partners Group sem festi kaup á félaginu í lok árs 2021. Eyjólfur segir innkomu fjárfestingarfélagsins hafa leikið lykilhlutverk í hröðum vexti atNorth á undanförnum árum. Til marks um vöxt félagsins var áætlað í umfjöllun Viðskiptablaðsins árið 2022 að það hafi verið metið á um 40 milljarða króna við kaupin. „Partners Group veitti okkur þann fjárhagslega styrk sem við þurftum á að halda til að geta vaxið hratt og framkvæmt það sem við vissum að myndi virka,“ segir hann og bætir við að djörf ákvörðun um að hefja uppbyggingu gagnavers í Stokkhólmi hafi einna helst leitt til þess að fjárfestingarfélagið hafi að lokum ákveðið að kaupa atNorth. „Það hefði verið mjög erfitt að selja erlendum aðila gagnaversfyrirtæki sem er einungis með starfsemi á Íslandi. Innkoma Partners Group gaf okkur byr undir báða vængi og gerði okkur kleift að ráðast í fjárfestingar sem voru áður óraunhæfar.“ Til að mynda hafi innkoma Partners Group opnað á möguleika atNorth til að fá fjármögnun frá erlendum bönkum. Eyjólfur leggur þó áherslu á að helsti lánveitandi atNorth á Íslandi á fyrstu árum félagsins, Landsbankinn, hafi alla tíð staðið þétt við bakið á fyrirtækinu. „Án þeirra hefðum við ekki náð svona langt.“ Tífaldast að stærð á næstu árum Vöxtur undanfarinna ára hjá atNorth, bæði á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum, hefur kallað á miklar fjárfestingar en auk þess að reka gagnaver á Akureyri, í Reykjanesbæ og í Hafnarfirði rekur atNorth gagnaver í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Að sögn Eyjólfs hefur atNorth að minnsta kosti tífaldast að stærð frá kaupum Partners Group á fyrirtækinu og hann gerir ráð fyrir öðrum eins vexti á næstu fjórum til fimm árum. „Við vorum orðin stærsta fyrirtækið í eignasafni Partners Group og því ljóst að það þyrfti að fá inn nýja eigendur til að styðja við næsta vaxtarskeið.“ Gagnaver atNorth á Norðurlöndunum eru alls átta talsins en fyrirtækið er með fleiri svæði í þróun víða á Norðurlöndunum. Það hefur tryggt sér 2 gígavött (GW) af rafafli til uppbyggingar og hefur að auki áform um frekari framtíðargetu. Eyjólfur segir vitaskuld mikla viðurkenningu fyrir atNorth og starfsfólks þess að stærsta og arðbærasta gagnaversfyrirtæki heims, Equinix, og stærsti lífeyrissjóður Kanada, CPPIB, séu orðnir eigendur fyrirtækisins. Hann fagnar því jafnframt að Partners Group muni áfram eiga um 10% eignarhlut í atNorth sem undirstriki tiltrú þeirra á félaginu. atNorth rekur gagnaver í Reykjanesbæ og einnig á Akureyri og í Hafnarfirði. © Aðsend mynd (AÐSEND) Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article