Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vatnleki í Tollhúsinu Brynjólfur Þór Guðmundsson Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Tollhúsinu í miðbæ Reykjavíkur í morgun vegna vatnsleka. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu virðist vera allnokkur vatnsleki í húsinu. Því var aukamannskapur frá annarri slökkvistöð sendur á staðinn svo verkið gengi fljótar fyrir sig. Bíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Landssamráðsfundur um aðgerðir til að draga úr ofbeldi Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri bjóða til landssamráðsfundar um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi á Íslandi. Hægt er að fylgjast með streymi af fundinum. Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Skíðagöngufólk leitaði skjóls í gömlu neyðarskýli þegar veðrið versnaði Erlent par óskaði eftir aðstoð björgunarsveita á fimmta degi skíðagöngu frá Akureyri. Fólkið var þá við Hreysiskvísl sem er töluvert norðan við Þórisvatn á Sprengisandsleið. Fyrir 52 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Ekkert lát á loftárásum Stríðið í Miðausturlöndum heldur áfram þar sem ráðist er á andstæðingana með herþotum, eldflaugum og drónum. Yfirmaður Bandaríkjahers segir að ráðist hafi verið á nærri 2.000 skotmörk í Íran. Ísraelar boðuðuð stórfelldar árásir. Íranar segjast stjórna Hormuz-sundi og halda árásum áfram. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Japan Leysa upp trúfélag sem hafði stórfé af sóknarbörnum Áfrýjunardómstóll í Japan staðfesti dóm af lægra dómstigi um að brjóta upp Sameiningarkirkjuna. Trúfélagið hefur lengi verið sakað um að þrýsta svo mjög á fjárframlög frá sóknarbörnum að það stefni þeim í fjárhagslegan voða. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Dreymdi aldrei um að verða söngvari: „En hér er ég enn“ Stefán Hilmarsson söngvari fagnar sextugsafmæli sínu í sumar með stórtónleikum. Stefnan var aldrei sett á tónlistina en hann var fenginn í hin ýmsu verkefni sem leiddu til annarra. „Ekki sá ég það nú fyrir, að þetta myndi endast svona lengi.“ Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Víða flughált á vegum Nokkrir vegir eru lokaðir í morgunsárið og víða er hálka á vegum, jafnvel flughált. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Í dag: Ísland mætir toppliði Svartfjallalands Ísland og Svartfjallaland mætast í kvöld í undankeppni EM kvenna í handbolta 2026. Mótið verður haldið í desember í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Útlit fyrir dimm él sunnan- og vestanlands Suðvestanátt blæs um landið í dag. Éljaveður verður um landið vestan- og sunnanvert eftir hádegi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Rúmur milljarður í starfslokasamninga hjá ráðuneytum Ráðuneyti og undirstofnanir þeirra gerðu starfslokasamninga fyrir um 1,1 milljarð á árunum 2018-2025. Dómsmálaráðuneytið greiddi mest allra, um 400 milljónir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Starfshópi ætlað að skila tillögum um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk í marslok Samráðshópi um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk er ætlað að skila tillögum til ráðherra fyrir marslok og mun meðal annars byggja þær á niðurstöðum hópavinnu árlegs samráðsþings um málefni fatlaðs fólks. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Engan sakaði í miklum eldsvoða í Grafarholti Allir tiltækir slökkviliðsmenn voru kallaðir út um klukkan fjögur í nótt þegar tilkynning barst um mikinn eldsvoða í íbúð á jarðhæð fjölbýlishúss í Grafarholti. Húsráðendur komust út fyrir eigin rammleik en íbúðin er mikið skemmd. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Fyrrverandi sendiherra segir engan skýran rökstuðning fyrir árásum á Íran Bandaríkjastjórn hefur ekki rökstutt árásir á Íran nægjanlega, að mati fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún hefur einnig áhyggjur af léttúð í frásögnum yfirvalda af manntjóni. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þriðja aftakan í Flórída það sem af er ári Markús Þ. Þórhallsson Varðturn við bandarískt fangelsi. Mynd úr safni. EPA Rúmlega fimmtugur bandarískur karlmaður var tekinn af lífi í Flórída í kvöld, en hann var dæmdur til dauða árið 1991 fyrir að hafa myrt lögreglumann með skammbyssu hans. Eitursprauta var notuð við líflátið, sem var það þriðja í Flórída á þessu ári. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Kanadamenn fjárfesta í námavinnslu og orku Grænlendingar og Kanadamenn hafa undirritað samning um umfangsmikla fjárfestingu í námuvinnslu og orkumálum. Heimastjórnin og ráðherra málaflokksins vonast til að efnahagslífið taki verulega við sér. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Sonur fallins æðstaklerks sagður taka við af föður sínum Nýr æðstiklerkur Írans hefur verið valinn. Hann er sonur æðstaklerksins sem drepinn var í loftárás síðasta laugardag og hefur ekki gegnt opinberu embætti áður. Sterk tengsl hans við byltingarvörðinn hafa tryggt honum mikil ítök. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Viðskiptaráðherrann svarar spurningum nefndar um tengsl við Epstein Markús Þ. Þórhallsson Bandaríski viðskiptaráðherrann Howard Lutnick hefur fallist á að svara spurningum eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Bandaríkjaþings, sem rannsakar glæpi kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Howard Lutnick er viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. EPA / WILL OLIVER / POOL Lutnick heimsótti eyju Epsteins í Karíbahafi nokkrum sinnum, nokkrum árum eftir að ráðherrann kveðst hafa slitið á öll tengsl við hann, samkvæmt vísbendingum í þeim milljónum skjala sem dómsmálaráðuneytið birti í janúar. Nefndarformaðurinn James Comer greindi frá þessu í færslu á X þar sem hann fagnar ákvörðun ráðherrans. Ekki kemur fram hvenær Lutnick flytur vitnisburð sinn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hvað er málið með grásleppu? Atvinnuvegaráðherra segir að kvótasetning á grásleppu hafi verið afturkölluð svo fleiri hafi leyfi til að veiða. Kvótasetningin hafi verið umdeild, ekki sé byrjað að framselja réttindin og Hafrannsóknastofnun hafi ekki áhyggjur af ofveiði. 3. mars 2026 kl. 22:51INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Risafjárfestingar í pípunum hjá Landsvirkjun Landsvirkjun hyggst á næstu árum ráðast í einhverjar umfangsmestu fjárfestingar sem fyrirtækið hefur ráðist í. Fjárfest verður fyrir 190 milljarða á næstu fimm árum. 3. mars 2026 kl. 22:49INNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði birtur Ásrún Aldís Hreinsdóttir Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði var gerður opinber á fjölmennum félagsfundi flokksins í kvöld. Karólína Helga Símonardóttir, framkvæmdarstjóri og varaþingmaður, leiðir listann sem Viðreisn segir einkennast af blöndu af fyrri reynslu og nýjum röddum. Hér má sjá hverjir skipa tíu efstu sæti listans: Karólína Helga Símonardóttir Árni Stefán Guðjónsson Hjördís Hlíðberg Óli Örn Eiríksson Sigrún Jónsdóttir Júlíus Andri Þórðarson Amanda K. Ólafsdóttir Sigurjón Ingvason Ágústa Sigurjónsdóttir Bragi Hinrik Magnússon Listinn var tilkynntur á fjölmennum fundi í Hafnarfirði í kvöld. Aðsend 3. mars 2026 kl. 22:32INNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Aukinn flutningskostnaður vegna átaka komi sér sérstaklega illa fyrir Ísland Hagfræðingur segir átökin í Miðausturlöndum þegar hafa haft mikil áhrif á olíu- og flutningsverð. Ekki sé þó ekki ljóst hver langtímáhrifin verði, allt fari það eftir hve lengi átökin standa yfir. 3. mars 2026 kl. 22:03INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mygla á endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild SAk Mygla hefur fundist í húsnæði Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit. Á Kristnesi starfar endurhæfingar og öldrunarlækningardeild sjúkrahússins, ekki er gert ráð fyrir því að skerða þurfi þjónustu vegna myglunnar. 3. mars 2026 kl. 20:40INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Heimurinn vill ekki hafa mig en ég ætla að vera í honum“ Einhverfum er gjarnan synjað um geðheilbrigðisþjónustu hérlendis. Ungur einhverfur maður sem hefur ítrekað lent á veggjum í kerfinu þrátt fyrir sjálfsvígshugsanir ákvað þegar hann fékk innlögn á geðdeild síðastliðið sumar að hann skyldi velja lífið. 3. mars 2026 kl. 20:39INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapa fylgi Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapa fylgi í borginni samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Báðir flokkarnir mælast áfram stærstir. 3. mars 2026 kl. 20:04INNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Farið í eftirlit á 350 vinnustaði á einu ári Á vegum formlegs samstarfseftirlits lögreglu, Skattsins og Vinnueftirlitsins sem hófst fyrir ári hefur verið farið á 350 vinnustaði til að athuga hugsanlega brotastarfsemi. 3. mars 2026 kl. 19:24INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Breytingar á stjórn Háskólans á Bifröst Dr. Vilhjálmur Egilsson er nýr ráðgjafi stjórnar og rektors háskólans á Bifröst. Vilhjálmur gegndi sjálfur starfi rektors skólans á tímabilinu 2013 til 2020. 3. mars 2026 kl. 19:00INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Þetta er skammarblettur á kerfinu okkar“ Það þarf að efla geðheilbrigðisþjónustu og úrræði fyrir einhverfa á Íslandi, segir geðlæknir. Ákveðinn hópur einhverfra falli milli skips og bryggju í kerfinu. 3. mars 2026 kl. 18:02ERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Norðmenn ræða þátttöku í fælingaráætlun Frakka Norsk stjórnvöld segjast tilbúin að ræða samstarf við Frakka um áætlun þeirra um fælingu með kjarnavopnum. Danir og Svíar ætla að taka þátt, en íslenskum stjórnvöldum var ekki boðið, segir utanríkisráðherra. 3. mars 2026 kl. 18:00INNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Pollrólegur Björn á sjúkrahúsinu í Ríad þrátt fyrir drónaárás á bandarískt sendiráð Björn Zoëga, forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Ríad, er pollrólegur þrátt fyrir að ófriðarbálið sem er að kvikna í Miðausturlöndum. Drónaárás Írans á sendiráð Bandaríkjanna í borginni hafi þó v