Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að gamla Tollhúsinu í miðbæ Reykjavíkur í morgun vegna vatnsleka. Ofn á fyrstu hæð hússins sprakk með þeim afleiðingum að heitt vatn lak yfir öll gólf og niður í kjallara. Það var vegfarandi sem gerði slökkviliðinu viðvart rétt fyrir klukkan átta í morgun um að vatn væri að leka undan aðalhurð hússins og út á götu. „Það hefur sprungið ofn hér í húsinu og heitt vatn frá honum borist um fyrstu hæðina og gufað upp á aðrar hæðir. Þetta er búinn að vera töluverður leki. Búið að leka greinilega í alla nótt og töluvert magn. Það er búið að stöðva lekann og verið að koma í veg fyrir frekara tjón,“ segir Guðmundur Guðjónsson varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Ekki er búið að leggja mat á mögulegt tjón. „Það er alltaf hættulegt þegar heitt vatn berst um hús að það skemmi mikið út frá sér. Okkar aðgerðir snúa að því að loftræsta húsið og það eru komnir fulltrúar frá ríkiseignum sem eiga húsið og sjá um það. Þetta fer svo í þeirra hendur," segir Guðmundur. Tjón varð í gamla Tollhúsinu í miðbæ Reykjavíkur þegar ofn á fyrstu hæð hússins sprakk og heitt vatn lak um gólf.