Búið er að upplýsa hvaða listamenn eru tilnefndir til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2026 sem verða afhent við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíói þann 11. mars. Veitt eru tvenn verðlaun; Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun. Auk þess eru veittar viðurkenningar fyrir samsýningu ársins, endurlit ársins og útgáfu ársins. Að lokum veitir Myndlistarráð einum listamanni heiðursviðurkenningu fyrir ævistarf sitt. Fjórir listamenn eru tilnefndir í flokknum Myndlistarmaður ársins og þrír eru tilnefndir til Hvatningarverðlaunanna. Claudia Hausfeld, Finnbogi Pétursson, Kristín Gunnlaugsdóttir og Sigurður Ámundason eru tilnefnd sem Myndlistarmaður ársins. Til Hvatningarverðlauna eru þau Hildur Elísa Jónsdóttir, Hrafnkell Tumi Georgsson og Julie Sjöfn Gasiglia tilnefnd. Myndlistarmaður ársins hlýtur 1.500.000 kr. í verðlaunafé og handhafi hvatningarverðlauna ársins hlýtur 750.000 kr. Verðlaunaupphæðin hefur hækkað um samtals 750.000 kr. frá því í fyrra. Claudia Hausfeld er tilnefnd fyrir sýninguna ANTECHAMBER í Nýlistasafninu. „Það er álit dómnefndar að Antechamber sýni á sterkan hátt listræna snilld Claudiu þar sem hún fæst ótrauð við rannsóknir á rýmislegum, efnislegum og hugmyndalegum takmörkunum ljósmyndunar. Antechamber var umhugsunarverð sýning sem gerði tilkall til vangaveltna í hugum áhorfenda löngu eftir að þeir sáu sýninguna,“ segir í umsögn dómnefndar. Finnbogi Pétursson er tilnefndur fyrir sýninguna Skjálfti í Listasafni Árnesinga. „Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður Ragnar skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað. Áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig til nærveru ástvinar,“ segir í umsögn dómnefndar. Kristín Gunnlaugsdóttir er tilnefnd fyrir sýninguna Ósagt í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum. „Mat dómnefndar er að sýningin Ósagt komi vel til skila djörfung Kristínar til endurnýjunar, hvernig hún setur sér nýjar áskoranir með því að brjóta upp myndmál sitt. Með næmni, sjálfsskoðun og sterkum tilvísunum gefur Kristín verkunum merkingarbært inntak,“ segir í umsögn dómnefndar. Sigurður Ámundason er tilnefndur fyrir sýninguna ÚTHVERFAVIRKI á vegum Listasafns ASÍ. „Það er mat dómnefndar að í sýningunni sé að finna afar beinskeytta en jafnframt ofureinlæga sýn á samtíma okkar. Þar fléttast saman húmor og dauðans alvara, sem kallast á við þann annarleika sem við upplifum á hverjum degi,“ segir í umsögn dómnefndar. Verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan 2018. Markmiðið er að heiðra íslenska myndlistarmenn, eða myndlistamenn sem búsettir eru á Íslandi, og vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar en jafnframt að veita einstaka myndlistarmönnum mikilvæga viðurkenningu og hvetja til nýrrar listsköpunar. Að dómnefnd Íslensku myndlistarverðlaunanna standa Myndlistarráð, Listaháskóli Íslands, Listfræðafélag Íslands, safnstjórar íslenskra listasafna og Samband íslenskra myndlistarmanna.