Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hæstiréttur ómerkir sýknudóm í máli foreldra skipverja sem féll fyrir borð

Read Full Article →

Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar í skaðabótamáli foreldra ungs skipverja sem féll fyrir borð og drukknaði, á hendur útgerðarfélaginu. Landsréttur sýknaði Brim af kröfum foreldranna en þeir fengu áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar, sem nú hefur ómerkt dóminn. Landsréttur þarf því að taka málið aftur fyrir. Vísir greinir frá. Hæstiréttur kvað upp úrskurðinn klukkan 14, en hann hefur ekki verið birtur á vef réttarins. Skipverjinn, Axel Jósefsson Zarioh, var á nítjánda aldursári þegar hann féll frá borði í maí 2020 þegar skipið Erlingur KE 140 var á leið til hafnar í Vopnafirði. Umfangsmikil leit fór fram á sínum tíma en líkamsleifar hans fundust í apríl ári síðar. Málið byggir einkum á því að foreldrar Axels telji útgerðina hafa brugðist bæði eftirlits- og öryggisskyldu sinni. Öryggismyndavélar um borð hafi ekki verið virkar og skipverjar áttað sig seint á hvarfi Axels og tilkynnt það enn síðar til lögreglu. Þá hafi sonur þeirra ekki setið öryggisfræðslunámskeið. Fréttin verður uppfærð þegar dómurinn hefur verið birtur.

Share this article