Innlent | mbl | 4.3.2026 | 15:35 | Uppfært 15:51 Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Aðalkrafa foreldranna um ómerkingu dóms Landsréttar var byggð á því að málsmeðferð fyrir réttinum hefði verið stórlega ábótavant. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar sem staðfesti í október dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði útgerðarfélag og TM tryggingar í miskabótamáli. Hefur málinu verið vísað á ný til Landsréttar til löglegrar meðferðar Málið varðar andlát sjómanns sem drukknaði eftir að hafa fallið fyrir borð af netabát. Foreldrar sjómannsins höfðuðu dómsmál til heimtu miskabóta vegna andláts sonar þeirra. Efnislegur ágreiningur málsins varðar kröfu foreldranna um miskabætur úr hendi félaganna vegna andláts sonar þeirra sem féll útbyrðis af netabát 18. maí 2020 þegar hann var að störfum fyrir útgerðarfélagið. Tjónið mætti rekja til stórfellds gáleysis Foreldrar mannsins töldu tjón þeirra mætti rekja til stórfellds gáleysis útgerðarinnar og starfsmanna hennar þar sem sonur þeirra hafi ekki fengið nauðsynlega öryggisfræðslu, leiðbeiningum um störf hans verið ábótavant, skipstjóri ekki sinnt eftirliti með ferðum skipverja og vanrækt hafi verið að tilkynna atvikið til rannsóknarnefndar samgönguslysa. Að því er varðar formhlið málsins töldu foreldrarnir að synjun Landsréttar á kröfu um frekari sönnunarfærslu og að málið yrði þar flutt munnlega hefði verið í andstöðu við 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með héraðsdómi voru félögin sýknuð af kröfum foreldranna þar sem ekki var talið sýnt fram á að útgerðin eða starfsmenn félagsins hefðu sýnt af sér stórfellt gáleysi sem væri skilyrði bótaskyldu samkvæmt 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga og tryggingaverndar tryggingafélagsins. Auk þess væru ósönnuð orsakatengsl ætlaðrar vanrækslu stefnda útgerðarinnar og þess að maðurinn hefði fallið fyrir borð. Frétt af mbl.is Sýknað í máli sjómanns sem lést Lögðu fram ýmis ný gögn Foreldrarnir skutu málinu til Landsréttar 27. mars 2025. Með greinargerð þeirra til réttarins 14. maí sama ár voru lögð fram ýmis ný gögn. Jafnframt var þess óskað að fjögur ný vitni gæfu skýrslu og nánar tilgreindar vitnaskýrslur í héraði yrðu spilaðar við upphaf aðalmeðferðar fyrir Landsrétti. Vegna mistaka lögðu félögin ekki fram greinargerð fyrir Landsrétti innan lögboðins frests sem rann út 12. júní 2025. Daginn eftir óskuðu þau eftir undanþágu samkvæmt 5. mgr. 158. gr. laga um meðferð einkamála til að skila greinargerð. Landsréttur hafnaði þeirri beiðni 19. sama mánaðar þar sem skilyrði undanþágu væru ekki uppfyllt. Jafnframt var tekið fram að ekki væri loku fyrir það skotið að frekari sönnunarfærsla færi fram fyrir réttinum en það væri háð mati hlutaðeigandi dómara hvort þeir teldu þörf á að leyfa munnlegan málflutning við þessar aðstæður. Landsréttur hafnaði kröfu foreldranna Landsréttur ákvað á dómþingi 29. september að hafna kröfum foreldranna um sönnunarfærslu, bæði um viðbótarskýrslutökur fyrir réttinum og spilun á framburðum vitna í héraðsdómi. Enn fremur var ákveðið með vísan til 3. mgr. 158. gr. laga um meðferð einkamála að rétturinn myndi kveða upp dóm á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þar með talinna upptaka af framburði vitna, og án munnlegs flutnings. Með hinum áfrýjaða dómi Landsréttar 9. október 2025 var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna stefndu. Málsmeðferð hafi verið stórlega ábótavant Aðalkrafa foreldranna um ómerkingu dóms Landsréttar var byggð á því að málsmeðferð fyrir réttinum hefði verið stórlega ábótavant. Þau hefðu áfrýjað málinu, lagt fram greinargerð innan lögboðins frests og boðað þar frekari sönnunarfærslu til að bregðast við forsendum héraðsdóms. Til hefði staðið að leiða ný vitni fyrir réttinn, tvo lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og tvo nefndarmenn úr rannsóknarnefnd samgönguslysa, meðal annars til að varpa ljósi á ástæður þess að nefndin taldi ekki tilefni til rannsóknar. Þá hefðu áfrýjendur rökstutt sérstaklega mikilvægi þess að fá að flytja málið munnlega fyrir Landsrétti. Þau töldu að Landsréttur hefði ranglega synjað beiðni þeirra um að málið yrði þar munnlega flutt. Munnlegur málflutningur ein forsenda opinberrrar málsmeðferðar Hæstiréttur bendir á í niðurstöðu sinni að munnlegur málflutningur sé ein forsenda opinberrar málsmeðferðar fyrir dómi og jafnframt þáttur í réttlátri málsmeðferð aðila einkamáls samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans. Bent er á að þegar litið sé til markmiðs breytinga á 3. mgr. 158. gr. laga um meðferð einkamála með lögum um breytingu á lögum um meðferð einkamála sé ljóst að Landsrétti beri að meta í hverju tilviki hvort áfrýjandi hafi réttmæta hagsmuni af því að fá að reifa munnlega fyrir réttinum sjónarmið að baki kröfum sínum eða viðbótargögnum, jafnvel þótt ekki fari þar fram viðbótarsönnunarfærsla með skýrslutöku af nýjum vitnum. „Í beiðni sinni um munnlegan flutning málsins fyrir Landsrétti rökstuddu áfrýjendur ríka hagsmuni sína af því að rétturinn neytti heimildar til að láta hann fara fram þótt stefndi hefði ekki tekið til varna, sbr. 3. mgr. 158. gr. laga nr. 91/1991. Þegar litið er til þeirra sjónarmiða, sérstakra atvika málsins og þeirrar þýðingar sem réttur til munnlegs flutnings máls hefur sem þáttur í réttlátri málsmeðferð fyrir dómi samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu er fallist á með áfrýjendum að efni hafi verið til að heimila þeim að flytja mál sitt fyrir réttinum þótt útivist hefði orðið þar af hálfu stefndu. Samkvæmt því bar Landsrétti að fallast á þá beiðni áfrýjenda. Í ljósi alls framangreinds er um slíkan annmarka á málsmeðferð Landsréttar að ræða að óhjákvæmilegt er að ómerkja hinn áfrýjaða dóm,“ segir í niðurstöðu Hæstaréttar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nýtt kort sýnir umfang átakanna síðustu daga Ögrandi endurkoma Megan Fox Framtíð miðjumanns United í lausu lofti „Argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári“ Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Óljóst hvort dagarnir verði bættir upp Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Um 50.000 vottorð: Enginn læknisfræðilegur tilgangur Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Nýtt kort sýnir umfang átakanna síðustu daga Ögrandi endurkoma Megan Fox Framtíð miðjumanns United í lausu lofti „Argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári“ Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Umdeild próf lögð fyrir nema Ómetanlegt að búa að sterkum auðlindum Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Um 50.000 vottorð: Enginn læknisfræðilegur tilgangur Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“