Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Spurði fyrrum landsliðsmann hvort hann væri laus fyrir leik kvöldsins

Read Full Article →

Thea Imani Sturludóttir, Díana Dögg Magnúsdóttir, Birna Berg Haraldsdóttir og Þórey Anna Ásgeirsdóttir eru allt nöfn sem gætu lagt lóð á vogarskálar íslenska liðsins í leik kvöldsins gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. Þær eru þó allar fjarverandi og góð ráð dýr fyrir landsliðsþjálfara Íslands Arnar Pétursson, hann sló á létta strengi í viðtali við RÚV þar sem fyrrum hægri hornamaður íslenska karlalandsliðsins, Einar Örn Jónsson, tók viðtalið. „Ertu laus?“ Spurði Arnar og skellti upp úr í kjölfarið. Ljóst er að íslenska liðsins bíður erfitt verkefni á Ásvöllum í kvöld en Svartfjallaland er í efsta sæti riðilsins með fullt hús stiga, Ísland situr í fjórða sætinu með núll stig. Leikurinn hefst 18:00 og verður í beinni á RÚV2, Stofan hefst 17:30.

Share this article