Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ein breyting á íslenska hópnum sem mætir Svartfjallalandi

Read Full Article →

Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, hefur valið landsliðshópinn sem leikur tvo leiki við Svartfjallaland í undankeppni EM 2026. Fyrri leikurinn veðrur á Ásvöllum 4. mars og sá seinni er ytra 8. mars. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV. Ísland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppninni, á móti Færeyjum heima og Portúgal úti. Svartfellingar unnu hins vegar fyrstu tvo leiki sína. Ísland og Svartfjallaland mættust einnig á HM í fyrra þar sem Svartfellingar unnu 27-36. Efstu tvö liðin fara beint á EM, liðið í þriðja sæti gæti komist með nægilega góðan árangur. Enginn nýliði er í hópnum en Sara Dögg Hjaltadóttir, leikmaður ÍR, er sú eina sem var ekki með á HM í desember. Alexandra Líf Arnarsdóttir dettur úr HM-hópnum í staðinn.

Share this article