Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hafdís ekki til Svartfjallalands: „Fáránlega svekkjandi“

Read Full Article →

Kvennalandsliðið í handbolta er þessa dagana í verkefni í undankeppni EM kvenna sem haldið verður í desember á þessu ári. Liðið vann frækinn sigur á toppliði riðilsins, Svartfjallalandi, á Ásvöllum í Hafnarfirði á miðvikudag, 28-27 . Liðin héldu svo til Svartfjallalands þar sem þau mætast í öðrum leik sínum á sunnudag. Tveir leikmenn úr íslenska hópnum urðu eftir heima; markvörðurinn Hafdís Renötudóttir og Katrín Tinna Jensdóttir sem báðar fengu höfuðhögg í leiknum. Hér má sjá þegar Hafdís fékk boltann í höfuðið frá hornamanni Svartfellinga. Hafdís Renötudóttir, markmaður í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta, heldur ekki til móts við liðið sem statt er í Svartfjallalandi. Hún fékk höfuðhögg í síðasta leik liðanna á miðvikudag. Ethel Gyða Bjarnasen flaug út með liðinu en vonir stóðu til að Hafdís gæti komið til móts við það fyrir leikinn þó að ekki hafi verið ráðlegt að fara beint í flug eftir höggið á miðvikudag. Nú er hins vegar staðfest að svo verður ekki og Sara Sif Helgadóttir og Ethel Gyða munu því verja mark Íslands í leiknum mikilvæga á sunnudag. „Ég er því miður ekki leikfær á sunnudaginn samkvæmt sjúkraþjálfara,“ segir Hafdís sem á sögu um höfuðhögg á sínum ferli. „Þetta er alveg fáránlega svekkjandi en því miður staðan. Það var of stutt í leikinn með þau einkenni sem eru til staðar.“ Staðan í riðli Íslands eftir þrjá leiki af sex er svona: Svartfjallaland 4 Færeyjar 4 Ísland 2 Portúgal 2 Tvö efstu liðin komast áfram auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti í riðlunum sex.

Share this article