Stórkostlegur sigur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta á Svartfjallalandi í gærkvöld reyndist dýrkeyptur. Hafdís Renötudóttir og Katrín Tinna Jensdóttir meiddust báðar í leiknum og fóru ekki með liðinu til Svartfjallalands í nótt. Hafdís og Katrín fengu báðar höfuðhögg og spiluðu ekki meira eftir það. Hafdís átti flottan leik áður en hún neyddist til að fara af velli og endaði með 10 varin skot og 32% markvörslu. Ethel Gyða Bjarnasen, markvörður Fram, var kölluð til í gærkvöld og fór með hópnum til Svartfjallalands í nótt. Ethel hefur ekki spilað landsleik. Í samtali við RÚV staðfesti Arnar Pétursson að vonast væri eftir því að Hafdís gæti komið til móts við hópinn fyrir leik á sunnudag. Hún hafi verið með hausverk eftir höggið í gær og ákvörðun hafi verið tekin um að fara ekki með hana í flug og ferðalag strax í kjölfarið. Staðan verður tekin síðar í dag en liðið lenti í Podgorica nú í hádeginu. Katrín Tinna verður hins vegar klárlega ekki með. „Þetta var þungt högg sem hún fékk í gær, strax komin stór kúla á gagnaugað,“ sagði Arnar. Í stað Katrínar Tinnu fór Alexandra Líf Arnarsdóttir til Svartfjallalands. Alexandra var að vísu í hópnum í gærkvöld vegna meiðsla Theu Imani Sturludóttur og Ölfu Brár Hagalín. Talsverð skakkaföll eru því í hópnum en á morgun mun Díana Dögg Magnúsdóttir bætast við, hún gat ekki tekið þátt í fyrri leiknum þar sem lokapróf í meistaranámi hennar fara fram þessa dagana og ekki var hægt að hnika þeim til. Í fjarveru Díönu og Theu var hallæri á örvhentum skyttum en það kom þó ekki að sök gegn Svartfellingum í gær. Seinni leikur Íslands og Svartfjallalands verður á sunnudaginn í Svartfjallalandi. Leikurinn hefst klukkan 17 og verður í beinni útsendingu á RÚV. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá landsliðsþjálfaranum, Arnari Péturssyni.