Innlent | mbl | 4.3.2026 | 17:40 Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Heitar umræður sköpuðust á þingi í dag. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ Nær helmingur segist óánægður með ríkisstjórnina Píratar leysa úr hnökrum og fá greitt á næstu vikum » Fleiri tengdar fréttir Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu ítrekað í ræðustól Alþingis í dag til að gagnrýna að frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu hefði verið afgreitt úr velferðarnefnd í morgun í ágreiningi og án þess að það hefði fengið fullnægjandi skoðun. Var meðal annars talað um pólitísk hrossakaup þessu samhengi. Fjárlaganefnd hafi til að mynda verið neitað að veita umsögn um málið og Seðlabankinn hafi ekki fengið að koma fyrir nefndina. Frétt af mbl.is Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Guðlaugi Þór heitt í hamsi Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna undir liðnum fundarstjórn forseta. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var meðal þeirra sem tóku undir orð Ólafs. Var honum heitt í hamsi. „Nú þarf forseti að segja þing og þjóð frá því hvort það sé orðin almenn regla að mál fái ekki eðlilega þinglega meðferð,“ sagði Guðlaugur og spurði til hvers við værum með þingnefndir. „Ég er ekki að byrja hér í gær og ég fullyrði það vegna þess að þetta eru ný vinnubrögð. Hér er verið að skapa fordæmi sem er grafalvarlegt og virðulegur forseti veit þetta,“ sagði Guðlaugur jafnframt. Frétt af mbl.is Þrýstingur á verðbólgu gæti aukist Hrossakaup og hreðjatak Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, sagði að greinilega hefði legið á að afgreiða mál Flokks fólksins vegna Evrópuumræðu hinna stjórnarflokkanna. „Ég skal hafa skilning á því að mönnum lá á að afgreiða út málið er varðar tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Það er greinilega skiptimynt Flokks fólksins í ríkisstjórnarsamstarfinu fyrir því Evrópuviðræðnamáli sem mun koma inn á næstu dögum. Það er augljóst að ég hef nefnt það áður hér hversu mikið hreðjatak Flokkur fólksins hefur á samstarfsflokknum sínum.“ Sigríður Andersen sagðist hafa skilning á þeim „pólitísku hrossakaupum“, en vísaði til þess að fleiri mál hefðu verið afgreidd úr nefndinni án þess að minnihlutanum gæfist færi á því að vera með nefndarálit. Frétt af mbl.is Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Aðeins þrír hagfræðingar jákvæðir Benti Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á að Læknafélag Íslands hefði til að mynda varað við tengingu bóta við launavísitölu. Það hefðu einnig flestir hagfræðingar landsins gert. Sagði hann vinnubrögðin vera popúlisma. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ekki hefði verið brugðist við eðlilegum beiðnum nefndarmanna. Meirihlutinn hafi kosið gegn því að fá gögn úr stjórnsýslunni. Sagði hún forsætisráðherra, fjármálaráðherra og Gylfa Magnússon, fyrrverandi ráðherra, einu hagfræðingana sem tali fyrir því að frumvarpið sé gott. „Allir aðrir vara við þessu máli og meira að segja er búið að segja núna meiri hlutanum hér í þessu húsi, í uppsiglingu eru stærstu hagstjórnarmistök seinni tíma. Því munið þið bera ábyrgð á í meirihlutanum.“ Frétt af mbl.is Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Tengdar fréttir Alþingi „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ Nær helmingur segist óánægður með ríkisstjórnina Píratar leysa úr hnökrum og fá greitt á næstu vikum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » United að opna veskið duglega? Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Rekinn eftir 8:0-sigur Slökkvilið kallað út vegna brennandi kerru í Hafnarfirði Stal matvöru og fæðubótarefnum úr Bónus Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Þurfum að koma upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu Koma bara ef þeir fá læknishjálp Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Evrópa komin í ógöngur með regluverk Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » United að opna veskið duglega? Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Rekinn eftir 8:0-sigur Slökkvilið kallað út vegna brennandi kerru í Hafnarfirði Stal matvöru og fæðubótarefnum úr Bónus Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kanna hvort eftirlitsaðilar geti deilt húsnæði Evrópa komin í ógöngur með regluverk Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Evrópa komin í ógöngur með regluverk Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“