Innlent | Morgunblaðið | 5.3.2026 | 10:10 Nær fjórða hvert starf í iðnaði Um 52 þúsund einstaklingar störfuðu í iðnaði í fyrra. mbl.is/Eggert Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Ný greining Samtaka iðnaðarins sýnir að verðmætasköpun iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári sem jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis. Þá námu útflutningstekjur greinarinnar 791 milljarði króna á því ári eða um 40% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins. Í greiningunni kemur einnig fram að um 52 þúsund manns hafi starfað í iðnaði í fyrra. Það jafngildir um 23% af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði, eða nær einu af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Aukinheldur nam velta greinarinnar nær 2.300 milljörðum króna í fyrra, sem er um þriðjungur af veltu viðskiptahagkerfisins. Þá kemur jafnframt fram að skattspor iðnaðar hafi verið 564 milljarðar króna árið 2024, stærst útflutningsgreina. „Þessi greining segir okkur hvað öflugur iðnaður er gríðarlega mikilvægur fyrir lífskjör okkar hérna á Íslandi,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Morgunblaðið. Aldrei gerst áður „Þarna sjáum við líka bara þetta mikla umfang eins og við sjáum í útflutningnum. Iðnaður er í rauninni sem heild stærsta útflutningsgreinin með útflutning upp á tæpa 800 milljarða.“ Hann segir það jafnframt áhugavert að sjá í greiningunni hvernig hugverkaiðnaður hafi vaxið jafnt og þétt síðustu ár. Í fyrra hafi svo útflutningstekjur hugverkaiðnaðar verið meiri en útflutningstekjur sjávarútvegs. „Það kemur á óvart því það hefur aldrei gerst áður,“ segir Sigurður. Í greiningunni kemur fram að útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hafi numið 369 milljörðum króna á síðasta ári, sem samsvarar 18% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins. Minni útflutningstekjur voru þó af stóriðju á síðasta ári en að sögn Sigurðar má rekja það til áfalla sem urðu í geiranum; lokunar PCC á Bakka, minni framleiðslu hjá Elkem og bilunar hjá Norðuráli á Grundartanga. Í greiningunni kemur aukinheldur fram að skattspor íslensks iðnaðar hafi verið 564 milljarðar króna árið 2024, en skattspor vísar til heildarframlags greinarinnar til hins opinbera og þar með til fjármögnunar heilbrigðis- og menntakerfis, sem og uppbyggingar innviða, svo sem samgangna og opinberra mannvirkja. Óvissutímar í heiminum Nánar verður farið yfir umfang iðnaðar á Íslandi á Iðnþingi 2026 sem fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag frá klukkan 14-16. „Við ætlum að fara vel yfir stöðu iðnaðarins og fáum þarna góða gesti til okkar til þess að ræða við okkur um alþjóðamálin,“ svarar Sigurður er hann er spurður um Iðnþingið. Hann segir meginþema þingsins í ár vera samhljóm. „Við erum að benda á að það eru óvissutímar í heiminum, meiri óvissa en við höfum séð um langt skeið, meiri spenna í samskiptum ríkja sem birtist í átökum sem við sjáum víða, tollastríði og öðrum verndarráðstöfunum. Þannig að við þurfum kannski að fara að hugsa um aðra hluti en við höfum þurft að hugsa um í mörg ár og við þurfum þá kannski fyrir vikið að hafa aðeins meira fyrir því að ná árangri hér heima,“ segir Sigurður og heldur áfram: „Við þurfum að efla hagsmunagæslu og ef við horfum til baka sjáum við að þegar við höfum fundið samhljóm þá höfum við náð árangri. Dæmi um það eru vöxtur hugverkaiðnaðar og mikil aðsókn í iðnnám eftir vel heppnað samstarf SI, stjórnvalda og skólanna.“ Hann segir svo einnig vera önnur mál þar sem samhljómur hafi ekki fundist og þar af leiðandi hafi ekki náðst árangur. Dæmi um það séu t.a.m. húsnæðismál, þrálát verðbólga og hátt vaxtastig. „Þetta er svolítið ákall okkar um að reyna að finna samhljóminn. Þegar allt kemur til alls erum við kannski sammála um fleira en oft má greina í umræðunni og við eigum að vinna saman að framfaramálum þannig að við getum betur tekist á við óvissutíma í heiminum, náð árangri og haldið uppi öflugum lífskjörum,“ segir framkvæmdastjórinn að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Föst í Katar og hraunar yfir stjórnvöld Nær fjórða hvert starf í iðnaði Zara Larsson notar lag Bríetar Helmingur í Visku sammála ráðherra Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Andlát: Haukur Guðmundsson Forsendurnar riða til falls Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Föst í Katar og hraunar yfir stjórnvöld Nær fjórða hvert starf í iðnaði Zara Larsson notar lag Bríetar Helmingur í Visku sammála ráðherra Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Loftnetin nú endanlega á útleið Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Andlát: Haukur Guðmundsson Forsendurnar riða til falls Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“