Íslenskur iðnaður er öflug og fjölbreytt atvinnugrein sem er undirstaða hagsældar landsmanna. Verðmætasköpun iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Það jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis. Útflutningstekjur greinarinnar námu 791 milljörðum króna á því ári eða um 40% af heildar útflutningstekjum hagkerfisins. Í greininni störfuðu í fyrra 52 þúsund manns sem er nær eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Velta greinarinnar nam nær 2.300 milljörðum króna í fyrra sem er um þriðjungur af veltu viðskiptahagkerfisins. Skattspor iðnaðar var 564 milljarðar króna árið 2024, stærst útflutningsgreina. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift