Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kallar eftir rökstuðningi fyrir því að 2.000 var vísað frá geðheilsuteymum

Read Full Article →

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir frekari upplýsingum og rökstuðningi fyrir því að tvö þúsund manns hafi verið vísað frá þjónustu geðheilsuteyma Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Frá ár­inu 2020 hef­ur alls 1.997 ein­stak­ling­um verið synjað um þjón­ustu hjá geðheilsu­teym­um Heilsugæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins. Það jafngildir rúmlega fjörutíu prósentum af öllum sem var vísað til teymisins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. „Þetta er fólk sem hefur haft tilvísanir frá læknum og öðru fagfólki en þegar það kemur á heilsugæslustöðina og vill fá aðstoð þá hefur því verið vísað frá. Nú er komið að því að spyrja hvað varð um þetta fólk og á hvaða forsendum var því vísað frá,“ segir Rósa. Fréttastofa hefur fjallað ítarlega um málefni einhverfra sem glíma einnig við geðrænan vanda. Þau segjast alls staðar lenda á vegg innan geðheilbrigðiskerfisins. Rósa segir tíma kominn til að samfélagið viðurkenni að hópur einhverfra falli milli skips og bryggju. Einhverfusamtökin hafi lýst því að ástandið hafi aldrei verið eins slæmt og nú, eftir að endurhæfingarúrræðinu Janusi var lokað. „Og ráðherra þarf að mínu mati að horfast í augu við þann veruleika og bregðast við sem fyrst. Einhverfir sem eiga við þessi tilteknu vandamál líka að etja, geðheilsuvandamál, þeir eiga bara betra skilið. Við þurfum að bregðast við og getum ekki litið endalaust undan.“

Share this article