Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Styrkir bæði mikilvægur hvati og gæðastimpill

Read Full Article →

Samgöngustofa auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi og heilsusamlegu umhverfi til sjós. Um er að ræða árlega styrkveitingu upp á alls 2,5 milljónir króna sem öllum er frjálst að sækja um. Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptafulltrúi Samgöngustofu. Mynd/Samgöngustofa „Heilt yfir hafa styrkirnir gengið vel. Mörg dæmi eru um að verkefni sem hafa byrjað með tiltölulega litlum styrk hafi náð að blómstra og orðið burðug ýmist með stærri styrkjum annars staðar frá eða orðið sjálfbær,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptafulltrúi Samgöngustofu, spurð um ávinninginn af þessum styrkjum. Mikill árangur Meðal þeirra sem hlotið hafa styrki er Hefring Marine IMAS, sem er með snjallsiglingakerfi. Fyrirtækið hefur fengið styrki fyrir greiningu og frumþróun kerfisins, til að þróa kerfið fyrir stærri skip og tengingar við siglingatæki, skilgreiningu á titringsþoli og núna síðast til að rannsaka skaðleg áhrif titrings á sjómenn. Þá hefur Aldan fengið styrki til að þróa Ölduna, öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip, og fyrir Öggu sem er öryggisstjórnunarkerfi fyrir smábáta. Félagið fékk síðan styrk til að bæta hættumati inn í kerfið. Mikilvægur hvati og gæðastimpill Styrkir geta verið fyrir afmarkaðan hluta stærra verkefnis og sýna þarf fram á heildarfjármögnun áður en styrkur er greiddur. Umsóknarfrestur er til 15. maí. „Það gegndi lykilhlutverki að við fengum lítinn styrk í fyrsta skipti sem við sóttum um til að byrja með hugmyndina um að gera Ölduna, öryggisstjórnunarkerfi fyrir fiskiskip,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu öryggis, spurður um mikilvægi styrkja eins og styrksins frá Samgöngustofu. Hjálpaði til að klára fyrstu frumgerðina Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu öryggis. Mynd/Aðsend „Þegar við sóttum um í annað skiptið vorum við komnir lengra og fengum stærri styrk árið þar á eftir sem hjálpaði okkur að klára fyrstu frumgerðina af Öldunni og á sama tíma gerðum við frumgerð af Öggunni, öryggisappi fyrir smábátasjómenn. Svo fengum við líka aftur smá upphæð til að gera hættumat starfa í Öldunni. Við klárum það verkefni núna í mars,“ segir Gísli. Ekki bara peningar Styrkina segir Gísli telja í meiru en bara peningum. „Í fyrsta lagi er þetta mikil hvati fyrir okkur hugvitsmennina að fá svona styrki. Og í öðru lagi er þetta gríðarleg viðurkenning yfir okkur þegar við erum að nálgast aðra til að vinna með okkur; hvort sem það eru útgerðir, hagaðilar eða stofnanir,“ segir hann. Styrkirnir séu ákveðinn gæðastimpill og viðurkenning. „Þetta telur mjög mikið, bæði hér innanlands og líka erlendis þegar við erum að kynna þar vegferð okkar í þróun á verkefnum eins og til dæmis Öldunni,“ segir Gísli. Mikil gróska sé á þessu sviði hérlendis. Hann nefnir sem dæmi fyrirtækið Hefring Marine sem fékk Nýsköpunarverðlaun Íslands í haust sem leið. Íslendingar opnari „Þeir eru orðnir risastórir. Þegar þeir voru að byrja með sína hugmynd sóttu þeir í þetta,“ segir Gísli um Hefring Marine og nefnir einnig Varann og Multitask. „Það er mikið af hugmyndum um hvernig við getum aukið öryggi sjómanna. Ég held að ástæðan fyrir því að við erum leiðandi á heimsvísu í öryggismálum sjómanna sé tilkoma Slysavarnaskóla sjómanna,“ segir Gísli. Skólinn eigi sinn þátt í að Íslendingar séu opnari fyrir því að taka öryggismál sjómanna á næsta stig. Blóð, sviti og tár og þrautseigja „Dæmi um áhrif okkar á heimsvísu er Hefring Marine, sem hefur selt sinn hugbúnað út um allt,“ segir Gísli. Útrás sé einnig hafin með Ölduna. „Við erum byrjuð í Grænlandi og nú erum við að skoða að fara yfir í önnur lönd og munum gera það á þessu ári,“ segir Gísli. Allt tengist þetta saman. „Það er blóð, sviti og tár og þrautseigja hjá nýsköpunaraðilunum sem dregur þetta áfram en þessir styrkir telja. Samfélagið nýtur góðs af og fær þá margfalt til baka.“

Share this article