Frá Sundahöfn í Reykjavík.RÚV Anton Brink / Anton Brink RÚV Vörur voru fluttar út fyrir 78 milljarða í febrúar og inn fyrir 88 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Halli á vöruviðskiptum nam því 9,9 milljörðum króna. Vöruskiptajöfnuðurinn var 49,5 milljörðum hagstæðari í febrúar en í sama mánuði í fyrra þegar hann nam 59,5 milljörðum. Halli á vöruviðskiptum síðustu tólf mánuði nemur 425,9 milljörðum. Það er 22,2 milljörðum króna betri niðurstaða en mánuðina tólf þar á undan. Síðustu tólf mánuði voru iðnaðarvörur 51% alls vöruútflutnings. Verðmæti þeirra dróst saman um 9% frá fyrra ári. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5%.