Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vöruviðskipti óhagstæð um 65 milljarða

Read Full Article →

Fluttar voru út vörur fyrir 73,2 milljarða króna í apríl og inn fyrir 138,1 samkvæmt Hagstofunni . Vöruviðskiptin voru því óhagstæð um 64,9 milljarða króna og var jöfnuðurinn í apríl því 10,8 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma í fyrra. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 54,1 milljarð króna í apríl 2025 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 429,6 milljarða króna sem er 35,5 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Verðmæti vöruútflutnings var níu milljörðum króna minna en í apríl 2025, fór úr 82,2 milljörðum króna í 73,2 milljarða, aðallega vegna samdráttar í útflutningi á iðnaðarvörum. Sjá einnig Vöruviðskipti óhagstæð um tíu milljarða „Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 915,3 milljarðar króna og dróst saman um 54,1 milljarð miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 6% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 49% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 14% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 41% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.“ Samhliða því nam verðmæti vöruinnflutnings 138,1 milljarði króna í apríl samanborið við 136,2 milljarða í apríl 2025 og jókst því um 1,9 milljarða króna eða um 1%. Aukningin var aðallega vegna aukins innflutnings á eldsneyti, smurolíum og flutningatækjum en á móti kom samdráttur í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og mat og drykkjarvörum.

Share this article