Fluttar voru út vörur fyrir 78 milljarða króna í febrúar 2026 og inn fyrir 88 milljarða samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 9,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 59,5 milljarða króna í febrúar 2025 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar 2026 var því 49,5 milljörðum krónum hagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 425,9 milljarða króna sem er 22,2 milljörðum krónum hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Verðmæti vöruútflutnings í febrúar 2026 var 1,7 milljarði króna, eða 2%, meira en í febrúar 2025 og fór úr 76,3 milljörðum króna í 78 milljarða. „Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 905,3 milljarðar króna og dróst saman um 39,7 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 51% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra dróst saman um 9% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 40% alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra jókst um 5% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.“ Á vef Hagstofunnar segir jafnframt að verðmæti vöruinnflutnings hafi numið 88 milljörðum króna í febrúar 2026 samanborið við 135,7 milljarða í fyrra og dróst því saman um 47,8 milljarða króna, eða um 35%. Lunginn af þessum samdrætti, eða 42 milljarðar, kom þá til vegna minni innflutnings á fjárfestingarvöru.