- What: Analysis of herring market trends
- Impact: Norwegian analyst predicts sustained high prices for herring due to supply and demand factors
Finn-Arne Egeness, sem er aðalgreinandi á sviði sjávarafurða hjá norska bankanum Nordea, telur að ólíkt því sem áður hafi gerst þegar markaðsverð á makríl hafi náð nýjum hæðum muni verðið að þessu sinni geta haldist hátt en ekki falla niður aftur. Þetta kemur fram í grein sem Egeness skrifar í Fiskeribladet norska. Þar segir hann að verð á makríl, sem sé ein mikilvægasta tegundin í norskum sjávarútvegi, hafi hækkað í methæðir að undanförnu. Meðalverð til sjómanna það sem af er þessu ári sé 49 norskar krónur miðað við 38 krónur í lok síðasta árs þegar verðið hafi hækkað um 77 prósent frá árinu 2024. Fleira en framboð ráði verði Segir Egeness eðlilegt að spyrja hvort þetta metverð sem nú fáist geti haldist, sérstaklega í ljósi þess að þegar áður hafi komið verðtoppar hafi þeim iðulega fylgt verðleiðrétting niður á við. Nú horfi hins vegar öðru vísi við því kvótar hafi dregist mjög saman auk þess sem menn hafi lagt mikið undir í þróun og sölu makríls til lengri tíma. Fleiri þættir sem hafi áhrif á verð Rekur Egeness að á síðustu árum hafi stöðugt stærri hluti makrílsins frá Noregi ratað til Asíulanda á borð við Japan, Suður-Kóreu, Víetnam, Kína, Taíland og Taívan. Á tíu árum hafi hlutur Norðmanna þar vaxið um tuttugu prósent. Segir hann breytingar á framboði mikilvægan þátt í að skýra verðhækkanir en að einnig verði að taka fleiri þætti inn í myndina. Tvöfalt fleiri japanskir staðir Nefnir Egeness meðal annars að mikil fjölgun japanskra veitingastaða utan Japans hafi aukið eftirspurn eftir makrílnum og þrýst verðinu upp. Á aðeins tíu árum hafi fjöldi þessara veitingastaða tvöfaldast og séu þeir nú 181 þúsund talsins enda sé mikil ásókn í japanskan mat utanlands. Þessi þróun hafi skapað nýja markaði og söluleiðir. Hægt að halda verðinu í núverandi hæðum Að sögn Egeness bendir verðþróunin á þessu ári til þess að leikendur á markaði telji verðið vera rétt. „Svarið við því hvort þetta verð haldi allt fram til neytandans fáum við ekki fyrr en í vor og í sumar,“ segir hann. Hægt er að sögn Egeness að halda verðinu í núverandi hæðum ef þeir sem eru neðarlega í framboðskeðjunni ná að halda góðri stöðu makríls í bæði verslunum og veitingastöðum og selja stærri hluta til matsölustaðanna, sérstaklega í löndum eins og Kína, Taílandi og Taívan.