- What: Aluminum prices rise after Iran attacks two tankers in the Middle East
- Impact: Global aluminum market affected
Heimsmarkaðsverð áls hefur hækkað um 5,4% í morgun eftir að Íran gerði árás á tvö álver í Miðausturlöndum. Verð á framvirkum samningum í London Metal Exchange kauphöllinni stendur í 3.451 dali á tonnið þegar fréttin er skrifuð. Verðið hæst upp í 3.492 dali í morgun. Stærsti álframleiðandi Mið-Austurlanda, Emirates Global Aluminium PJSC, sagði á laugardaginn að álver þess í Abú-Dabí hefði orðið fyrir „verulegu tjóni“. Aluminium Bahrain, sem er í meirihlutaeigu bareinska ríkisins, sagðist vera að meta tjón á álveri sínu. Stríðsátökin í Miðausturlöndum höfðu þegar ýtt töluvert undir verð á áli þar sem álver á svæðinu geta ekki flutt út málminn eða flutt inn hráefni. Umræddar árásir gætu gert ástandið verra með því að draga mögulega úr framboði til lengri tíma, jafnvel þótt Hormússundið verði opnað á ný, að því er segir í frétt Bloomberg . Hlutabréfaverð Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, hefur hækkað um 8,4% í viðskiptum fyrir opnun markaða vestanhafs.