Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq lækkar um 10% í fyrstu við­skiptum

  • What: Stock price drop for Amaroq and gold price decline
  • Impact: Investors and financial markets
Read Full Article →

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um meira en 2% í fyrstu viðskiptum í dag. Átján af 27 félögum aðalmarkaðarins hafa lækkaði frá opnun Kauphallarinnar, þar af átta um meira en 2%. Málmleitarfélagið Amaroq leiðir lækkanir en gengi félagsins hefur fallið um 10% og stendur í 143 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Alls hefur gengi Amaroq nú lækkað um meira en 40% frá því að það náði hæstu hæðum í 244 krónum í lok janúar síðastliðins. Heimsmarkaðsverð gulls hefur lækkað um 5,5% það sem af er degi og stendur í 4.246 dölum á úsnu þegar fréttin er skrifuð. Lækkanir á íslenska hlutabréfamarkaðnum fylgja í kjölfar talsverðra lækkana á asískum mörkuðum í morgun. Suður-kóreska hlutabréfavísitalan Kospi lækkaði um 6,5% í morgun, japanska Nikkei 225 um 3,5% og kínverska SSE 50 um 3,2%. Þá hefur evrópska hlutabréfavísitalan Europe Stoxx 600 lækkað um 2% það sem af er degi. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í morgun eru lækkanir raktar til þess að Bandaríkin og Íran hafa haldið áfram hótunum um frekari árásir á orkuinnviði í Persaflóa. Sjá einnig Allt rautt við opnun markaða í Evrópu Icelandair hefur lækkað næst mest af félögum Kauphallarinnar eða um 5% og stendur í 0,69 krónum á hlut, en til samanburðar var dagslokagengi félagsins á föstudaginn 0,73 krónur. Dagslokagengi flugfélagsins fór lægst í 0,70 krónur þann 6. mars sl. Þá hefur gengi Alvotech, sem birti ársuppgjör á miðvikudaginn síðasta, lækkað um 3,2% og stendur í 421 krónu á hlut. Dagslokagengi félagsins náði lægstu lægðum í 435 krónum á föstudaginn síðasta.

Share this article