Stjórnendur íslenska gagnaverafyrirtækisins atNorth áttu hlutabréf í fyrirtækinu fyrir rúmlega 24 milljarða króna við sölu þess. Fyrirtækið hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt og sagt var frá í vikunni. Kaupendur eru bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board. AtNorth er í grunninn félag sem var hluti af upplýsingafyrirtækinu Advania þar til fyrir nokkrum árum. Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth, segir að hlutabréfaeign starfsmannanna sé tilkomin vegna hvatakerfis sem komið var upp hjá fyrirtækinu þegar það var selt til svissneska sjóðsstýringarfyrirtækisins Partners Group í árslok 2021. Partners Group hélt á 95 prósenta eignarhlut í fyrirtækinu og stjórnendur áttu 5 prósenta hlut. Í sænskum ársreikningi móðurfélags atNorth-gagnaveranna á Norðurlöndunum stendur að 95 prósent af félaginu sé í eigu félags í Lúxemborg sem heitir Green DC LuxCo. Þetta er félag Partners Group og viðskiptavina. Svo stendur líka að 5 prósenta hlutur í atNorth sé í eigu stjórnenda félagsins. Ekki er tilgreint hvaða stjórnendur þetta eru. Eyjólfur Magnús segir að um sé að ræða breiðan hóp stjórnenda og stjórnarmanna sem séu á bak við þessa hlutafjáreign. Hann segir að upplýsingar um einstaka hlutdeildir eða skiptingu þessara eignarhluta séu trúnaðarmál. Hann segir að hafa þurfi að hafa í huga að enginn starfsmaður atNorth hafi fengið neitt gefins og að draga þurfi kaupverð hlutabréfanna og skuldir vegna þeirra frá væntanlegum hagnaði starfsmannanna af sölu hlutabréfanna. Fjallað er um söluna á atNorth í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Verðmæti gagnaverafyrirtækisins atNorth tífaldaðist á fjórum árum. Stjórnendur áttu hlut í fyrirtækinu sem var 24 milljarða króna miðað við söluverð félagsins upp á 485 milljarða. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins var einnig óbeinn hluthafi. LSR í fjárfesti í gegnum Partners Group Hverjir aðrir en stjórnendurnir eru að selja atNorth og hverjir hagnast á þessari ævintýrlega sölu? Hvaða fjárfestar eru á bak við 95 prósenta eignarhlut Partners Group sem er meira en 450 milljarða króna virði? Upplýsingafulltrúi Partners Group, Alec Zimmermann, segist í tölvupósti ekki getað svarað spurningum um endanlega eigendur atNorth sem nú innleysa mikinn hagnað við söluna. Hann var meðal annars spurður að því hversu margir íslenskir aðilar hafi fjárfest óbeint í atNorth. Í svari hans segir orðrétt: „Við upplýsum ekki um síkar staðreyndir um fjárfesta okkar. Almennt séð getum við sagt að við fjárfestum fyrst og fremst fyrir hönd stofnanafjárfesta eins og lífeyrissjóða, fjárfestingarsjóða og slíkt. En einnig fyrir hönd fjársterkra einstaklinga sem fjárfesta í sjóðum okkar í gegnum eignastýringar sínar eða banka.“ Fréttastofa hefur reynt að rekja eignarhaldið á atNorth hjá Partners Group. Eignarhaldið teygir sig í til Svíþjóðar, Lúxemborgar og Sviss. En eins og er með sjóðsstýringarfyrirtæki almennt þá er ekki hægt að sjá hverjir það eru sem eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum svissneska félagsins. Hvergi opinberlega er hægt að sjá heildstæðan hluthafalista. Fréttastofa hefur annars einungis upplýsingar um einn íslenskan fjárfesti sem var hluthafi í atNorth í gegnum Partners Group. Þetta er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins eða LSR. Í svari LSR frá kemur fram að óbeinn hlutur LSR í atNorth hafi verið í gegnum óskráða innviðasjóðinn Partners Group Direct Infrastructure III. Heildareign LSR í sjóðnum var metinn á tæplega 3,7 milljarða króna um síðustu áramót. Í svarinu segir að hluturinn í atNorth hafi verið um 9 prósent af heildareignum þessa sjóðs samkvæmt síðasta uppgjöri. Endanlegur óbeinn eignarhlutur LSR í atNorth var því óverulegur miðað við söluverð fyrirtækisins. Að minnsta kosti einn íslenskur lífeyrissjóður er því að innleysa hagnað af sölunni á atNorth.