Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis, sendi eigendum sjóða félagsins bréf í byrjun vikunnar samhliða birtingu ársreiknings Stefnis. Í bréfinu segir hann að þrátt fyrir mótvind á innlendum hlutabréfamarkaði hafi rekstur margra félaga gengið vel og fjármagni hafi verið skilað út með bæði endurkaupum og arði. Jón segir jafnframt að þróun íslenska hagkerfisins skipti miklu máli fyrir framhaldið og að sú þróun muni mótast af jafnvægisleit milli verðbólgu, vaxtastigs og hagvaxtar. „Þrátt fyrir aukna óvissu á sumum sviðum hefur hagkerfið sýnt töluverða seiglu og grunnstoðir þess eru áfram sterkar. Í eignastýringu Stefnis hefur áfram verið lögð áhersla á að bregðast við breyttu efnahagsumhverfi með virku eignavali og breiðri áhættudreifingu,“ skrifar Jón. Útlit er fyrir að hátt vaxtastig verði þrálátara en vonir hafa staðið til. Í afkomukynningum félaga í kauphöllinni má merkja umfjöllun um þróun launakostnaðar sem er umfram það sem sjá má í löndum sem við berum okkur saman við. „Ef launabreytingar halda áfram eins og verið hefur sl. ár þá er viðbúið að við munum áfram búa við hátt vaxtastig. Þá hafa stjórnvöld sett á nýja skatta og breytt skattlagningu fyrirtækja með stuttum fyrirvara, sem erfitt er að bregðast við í áætlanagerð.“ Jón segir að til að bregðast við þessum aðstæðum ríði á að aðhalds verði gætt í ríkisfjármálum á næstunni. „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur auglýsti í byrjun árs 2025 eftir tillögum að leiðum til að spara í opinberum rekstri og hagræða í ríkisrekstri. Framtakið var gott en minna hefur frést af hagræðingaraðgerðum sem þetta útspil skapaði væntingar um. Það er okkar von að bæði sveitarfélög og ríkisvaldið setji saman sérstakan „stop-to-do“ lista yfir verkefni sem ekki eru nauðsynleg eða aðrir geta betur sinnt. Ellegar mun ekki takast að loka þeim halla sem er á rekstri sameiginlegra sjóða okkar allra um þessar mundir,“ skrifar Jón. Rekstur Stefnis gekk vel á síðasta ári. Í lok árs 2025 voru eignir í virkri stýringu hjá Stefni um 379 milljarðar króna, sem var 43 milljörðum krónum meira en í upphafi árs og nemur 12,8% hækkun á árinu. Hækkunin skýrist að mestu af innflæði í nýstofnaða sjóði ásamt ávöxtun á árinu. Að lokum þakkar Jón það traust sem fjárfestar sýna Stefni með því að treysta því fyrir því að fjárfesta sparnað þeirra. „Við tökum því hlutverki mjög alvarlega,“ skrifar Jón að lokum. Sjá einnig Hagstætt verð lykilatriði í endurkaupum