Innlent | mbl | 6.3.2026 | 21:52 Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Vilhjálmur Árnason, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ Ljósmynd/Jón Logi Víðisson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærsti flokkurinn í Reykjanesbæ samkvæmt nýrri könnun Gallup sem mbl.is hefur undir höndum. Samkvæmt niðurstöðunum er meirihlutinn í Reykjanesbæ kolfallinn. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 37,8% fylgi, sem er veruleg aukning frá því í desember, þegar fylgið mældist 28% í könnun Gallup. Á sama tíma mælist Samfylkingin með 26,6% fylgi en flokkurinn mældist með 30% fylgi í desember. Munurinn á milli flokkanna hefur því stóraukist á milli kannanna. Aðrir flokkar mælast með minna fylgi í könnuninni. Miðflokkurinn mælist með 13,0% fylgi, Framsóknarflokkurinn með 10,0% og Umbót með 6,2%. Þá mælast aðrir flokkar með 5,5% fylgi samanlagt. Könnun Gallup var framkvæmd í janúar og febrúar en alls tóku 379 einstaklingar þátt í könnuninni. Meirihlutinn í Reykjanesbæ samanstendur af Samfylkingunni, Framsóknarflokknum og Beinni leið. Bein leið mun ekki bjóða fram á ný í komandi kosningum. Frétt af mbl.is Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Breytingar á pólitíska sviðinu Könnunin kemur í kjölfar prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þar sem Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, var kjörinn leiðtogi flokksins og bæjarstjóraefni eftir að hafa hlotið afgerandi sigur í fjölmennasta prófkjöri í sögu flokksins í bænum. Í síðasta mánuði voru sagðar fréttir af því að Umbót hefði sameinast Sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ. Margrét Þórarinsdóttir, sem áður leiddi Umbót og var á þarsíðasta kjörtímabili oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ, skipar nú annað sæti á lista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Það eru því breytingar á hinu pólitíska sviði í Reykjanesbæ. Frétt af mbl.is Listi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ samþykktur Viðreisn næði ekki inn manni Viðreisn tilkynnti fyrir áramót að flokkurinn hygðist bjóða fram í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum og kemur þar með nýr inn í bæjarpólitíkina. Viðreisn mælist hins vegar með 0,9% fylgi í könnuninni og er því langt frá því að ná inn manni samkvæmt þessari könnun. Bein leið, sem er í núverandi meirihlutasamstarfi í Reykjanesbæ, mun ekki bjóða fram í komandi kosningum en var aftur á móti valmöguleiki í þessari könnun. Mældist flokkurinn með 1,5% fylgi. Frétt af mbl.is Dregur til tíðinda í bæjarpólitíkinni Listarnir farnir að taka á sig mynd Samfylkingin hefur kynnt listann sinn og Guðný Birna Guðmundsdóttir leiðir Samfylkinguna í komandi kosningum. Hún tók við á miðju kjörtímabili sem oddviti flokksins eftir að Friðjón Einarsson hætti í bæjarstjórn. Framsókn hefur einnig kynnt listann sinn og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir leiðir Framsóknarflokkinn á ný í komandi kosningum. Samkvæmt þessari könnun er Framsókn í frjálsu falli. Flokkurinn fékk 22,6% í síðustu kosningum en mælist nú aðeins með 10%. Ekki liggur fyrir hverjir muni skipa lista Viðreisnar og Miðflokksins í komandi kosningum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Liverpool fyrsta liðið í átta liða úrslit Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Óvænt tap Evrópumeistaranna Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Snjókoma og hvassviðri í kortunum Með kíló af kókaíni falið í niðursuðudósum Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Árnason Aldrei gerst að dögum sé bætt við Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Veðurstofan varar við tíðum eldingum Íslenska mest töff tungumál í heimi Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Liverpool fyrsta liðið í átta liða úrslit Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Óvænt tap Evrópumeistaranna Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Umræðan Lífeyrir fylgi launum Eigum við að veiða tonn eða verðmæti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Borgin kreistir markaðinn Aldrei gerst að dögum sé bætt við Íslenska mest töff tungumál í heimi Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Árnason Aldrei gerst að dögum sé bætt við Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Veðurstofan varar við tíðum eldingum Íslenska mest töff tungumál í heimi Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga