Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2026 | 7:10 Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Aðildarviðræður Jóhanna Sigurðardóttir þáverandi forsætisráðherra og Olli Rehn, þáverandi stækkunarstjóri ESB, ræðast við í ágúst 2009. Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Guðmundur Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Eiginlegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hófust í apríl árið 2011 en í júlí árið 2009 samþykkti Alþingi með 33 atkvæðum gegn 28 þingsályktunartillögu Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi utanríkisráðherra, um að sækja um aðild að sambandinu. Aðdragandi þess að þingsályktunartillagan var lögð fram var í stuttu máli sá að Samfylkingin og Vinstrihreyfingin – grænt framboð mynduðu meirihlutastjórn eftir þingkosningar í apríl árið 2009. Í samstarfsyfirlýsingu flokkanna sagði að ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu yrði í höndum íslensku þjóðarinnar, sem myndi greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. „Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi. Stuðningur stjórnvalda við samninginn þegar hann liggur fyrir er háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöðuna út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða- og gjaldmiðilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og um almannaþjónustu,“ sagði síðan í yfirlýsingunni. Viðræðum lokið um 11 kafla Í skýrslu sem utanríkisráðuneytið birti í apríl 2013 um stöðu aðildarviðræðnanna kom fram að Ísland hefði afhent samningsafstöðu sína í 29 af þeim 33 efnislegu samningsköflum sem viðræðurnar snerust um og 27 kaflar hefðu verið opnaðir. Viðræðum væri þegar lokið um 11 samningskafla en það voru einkum málaflokkar sem voru hluti af EES-samningnum. Einnig væri viðræðum lokið um samningskafla um utanríkis-, öryggis- og varnarmál þar sem sérstök yfirlýsing staðfesti herleysi Íslands kæmi til aðildar. Þeir kaflar sem ráðuneytið sagði að búið væri að afgreiða voru utanríkis-, öryggis- og varnarmál, hugverkaréttur, félagaréttur, neytenda- og heilsuvernd, frjáls för vinnuafls, menntun og menning, vísindi og rannsóknir, fyrirtækja- og iðnstefna, réttarvarsla og grundvallarréttindi, samevrópsk net og samkeppnismál. Viðræður stæðu enn yfir um 16 samningskafla: Opinber innkaup, upplýsingasamfélagið og fjölmiðla, orkumál, flutningastarfsemi, félags- og vinnumál, framlagsmál, fjárhagslegt eftirlit, hagtölur, fjármálaþjónustu, tollabandalag, frjálsa vöruflutninga, efnahags- og peningamál, utanríkistengsl, umhverfismál, skattamál, byggðastefnu og samræmingu uppbyggingarsjóða. Þá hafði Ísland afhent sína samningsafstöðu í tveimur köflum. Annars vegar varðandi matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði og hins vegar dóms- og innanríkismál. Viðræður um þessa kafla voru ekki hafnar. Í skýrslunni kom einnig fram að Ísland hefði ekki fullgert samningsafstöðu í samningsköflunum um sjávarútveg og landbúnað, og tveimur EES-köflum sem tengdust fjárfestingum í sjávarútvegi en vinna væri komin vel á veg við mótun samningsafstöðu Íslands á grundvelli ályktunar Alþingis. Í upphafi árs 2013 hefði verið gert samkomulag um að bíða með að ljúka gerð samningsafstöðunnar í þessum fjórum köflum fram yfir kosningar til Alþingis í apríl 2013. Hlé á aðildarviðræðum Í þeim kosningum misstu ríkisstjórnarflokkarnir tveir meirihluta sinn á Alþingi og ný ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins var mynduð í maí. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var því lýst yfir að gert yrði hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið og úttekt gerð á stöðu viðræðnanna og þróun mála innan sambandsins. „Ekki verður haldið lengra í aðildarviðræðum við Evrópusambandið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði síðan í stefnuyfirlýsingunni. Tæpum tveimur árum síðar, í mars 2015, lýsti Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, því yfir í bréfi til embættismanna Evrópusambandsins að ríkisstjórn Íslands hefði engin áform um að hefja aðildarviðræður að nýju. „Í ljósi framangreinds er það bjargföst afstaða ríkisstjórnarinnar að ekki skuli líta á Ísland sem umsóknarríki ESB og lítur hún svo á að rétt sé að ESB lagi verklag sitt að þessu,“ sagði m.a. í bréfinu. Evrópusambandið hefur þrátt fyrir þetta ekki litið svo á að aðildarviðræðunum hafi þarna verið slitið og framkvæmdastjórn sambandsins hefur staðfest að umsókn Íslands sé enn í gildi. Á þeirri forsendu hefur núverandi ríkisstjórn nú samþykkt að leggja fyrir Alþingi þingsályktunartillögu varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og sú atkvæðagreiðsla fari fram 29. ágúst næstkomandi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Framhald eða nýjar aðildarviðræður? Vandvirkni bönnuð í þingnefndum Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enski boltinn „stendur undir sér“ Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Ford kominn í Rauðahafið: Gæti slegið tvö met Borgin kreistir markaðinn Mest lesið Í gær Í vikunni Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Kristinn Jón felldi Alexöndru Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Andlát: Árni Árnason Bjarni Benediktsson minnist Davíðs Oddssonar Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Enda á örorkubótum vegna álagsins Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Framhald eða nýjar aðildarviðræður? Vandvirkni bönnuð í þingnefndum Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenska mest töff tungumál í heimi Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Borgin kreistir markaðinn Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Mest lesið Í gær Í vikunni Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Kristinn Jón felldi Alexöndru Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Andlát: Árni Árnason Bjarni Benediktsson minnist Davíðs Oddssonar Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Enda á örorkubótum vegna álagsins Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason