Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Framhald eða nýjar aðildarviðræður?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2026 | 7:00 Framhald eða nýjar aðildarviðræður? Birgir Ármannsson mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Ríkisstjórnin hefur kynnt ákvörðun sína um að hefja undirbúning að aðildarferli að Evrópusambandinu með framlagningu þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Í tillögutextanum er að finna orðalag þeirrar spurningar sem ríkisstjórnin vill bera undir kjósendur og er þar talað um framhald aðildarviðræðna við sambandið. Ætlunin er að spyrja: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Viðræðum lauk í janúar 2013 Það blasir auðvitað við að þetta orðalag er villandi. Með þessu er látið að því liggja að í gangi séu einhverjar viðræður um aðild milli Íslands og ESB og spurningin sé bara sú hvort halda eigi þeim áfram. Staðan er hins vegar sú að Ísland var einu sinni í viðræðum um aðild að Evrópusambandinu en þeim var hætt snemma árs 2013 – fyrir þrettán árum. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur setti þessar viðræður á ís í janúar það ár og eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum um vorið var ESB gerð grein fyrir því að viðræðunum væri hætt, samninganefndir leystar upp og öll vinna af hálfu beggja aðila lögð til hliðar. Síðar ítrekuðu bæði þáverandi utanríkisráðherra og forsætisráðherra þessa afstöðu Íslands í bréfasendingum og samtölum við forystumenn ESB, sem á móti tók Ísland út af öllum listum sambandsins um ríki í umsóknar- og aðildarferli. Þegar af þessum ástæðum er allt tal um framhald viðræðna nú mjög langt frá veruleikanum. Leggja þarf í vinnu við alla samningskaflana En jafnvel þótt litið sé framhjá þessari forsögu hljóta að vakna verulegar efasemdir um þetta orðalag spurningarinnar þegar horft er til stöðu viðræðnanna í upphafi árs 2013 og á hvaða punkti nýjar viðræður gætu byrjað, fái ríkisstjórnin þetta umboð. Þar hefur verið rifjað upp að þegar viðræðunum lauk hafi verið búið að ljúka (til bráðabirgða) 11 efnisköflum viðræðnanna, búið hafi verið að opna 16 til viðbótar en þeim ekki lokið, og loks hafi ekki verið búið að opna sex kafla. Þessi upptalning segir auðvitað ekki alla söguna. Með nokkurri einföldun má segja að aðallega hafi verið lokið efnisköflum sem Ísland hefur þegar undirgengist á grundvelli EES-samningsins en ekki hafi verið byrjað að vinna neitt í viðræðum varðandi þá kafla sem fyrirsjáanlegt var að yrðu erfiðastir í ferlinu. Kaflarnir sem búið var að opna en hafði ekki verið lokað voru hins vegar afar mislangt komnir. Margt í þeim 16 köflum tengist EES-samningnum en annað ekki. Ljóst er að ef farið verður aftur í viðræður við ESB þarf að leggja vinnu í alla þessa kafla. Líka þá sem búið var að ljúka til bráðabirgða 2013. Það þarf að lágmarki að fara yfir réttarþróun annars vegar á Íslandi og hins vegar í ESB til að hægt sé að meta hversu vel íslensk löggjöf samræmist regluverki sambandsins. Margt hefur breyst í þeim efnum á 13 árum og í sumum efnum kann að vera betra samræmi milli íslenskrar löggjafar og ESB-löggjafar, en á öðrum sviðum kann réttarþróunin að hafa farið í mismunandi áttir. Ytri aðstæður hafa líka breyst verulega, eins og öllum er ljóst. Óhjákvæmilega verða því allir samningskaflarnir til umfjöllunar í nýjum viðræðum. Á að byggja á forsendum og skilyrðum frá 2009? Svo má líka spyrja hvort núverandi ríkisstjórn ætlar að fara í viðræður á sömu forsendum og með sömu skilyrðum og ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna gerði á árunum 2009-2013. Telur ríkisstjórnin sig að einhverju leyti bundna af ákvörðunum þeirrar ríkisstjórnar og þess þingmeirihluta sem þá var við völd? Telur ríkisstjórnin að hún geti sjálf ákveðið hvernig hún hyggst skipuleggja viðræðurnar, bæði hvað varðar vinnulag, samráð, áherslur og efnisatriði, eða ætlar hún að fylgja þeirri forskrift sem lagt var upp með af hálfu Alþingis sumarið 2009 og var mikilvæg forsenda þess að þingsályktunartillaga þáverandi utanríkisráðherra var samþykkt af meirihluta þingmanna? Ef núverandi ríkisstjórn ætlar að fara út í þetta ferli á eigin forsendum og það sem var samþykkt 2009 skiptir ekki máli, er þá yfirleitt hægt að tala um þetta sé framhald sömu viðræðna eða eru þetta nýjar viðræður? Svarið er auðvitað augljóst. Í allri umfjöllun fræðimanna og alþjóðasamtaka sem láta sig lýðræðismál varða er lögð áhersla á að spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslum séu skýrar, óskilyrtar, hlutlausar og megi ekki vera leiðandi á neinn hátt. Spurningin sem ríkisstjórnin gerir tillögu um uppfyllir ekki þessi skilyrði. Birgir Ármannsson, lögmaður og fyrrverandi forseti Alþingis. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Framhald eða nýjar aðildarviðræður? Vandvirkni bönnuð í þingnefndum Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenska mest töff tungumál í heimi „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Einn dalur verðmætari en hundrað Mest lesið Í gær Í vikunni Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Kristinn Jón felldi Alexöndru Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Andlát: Árni Árnason Bjarni Benediktsson minnist Davíðs Oddssonar Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Enda á örorkubótum vegna álagsins Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Framhald eða nýjar aðildarviðræður? Vandvirkni bönnuð í þingnefndum Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB vill fá aðgang að olíuleiðslunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Ford kominn í Rauðahafið: Gæti slegið tvö met Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Mest lesið Í gær Í vikunni Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Kristinn Jón felldi Alexöndru Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Andlát: Árni Árnason Bjarni Benediktsson minnist Davíðs Oddssonar Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Enda á örorkubótum vegna álagsins Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason

Share this article