- What: Political referendum proposal
- Impact: No direct security impact
Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Í greinargerð með tillögunni er lögð áhersla á að við blasi gjörbreyttur veruleiki í alþjóðamálum, óstöðugleiki ríki í alþjóðastjórnmálum og alþjóðahyggja eigi undir högg að sækja. Þetta ýti undir auki innlendar áskoranir sem snúi meðal annars að verkefni stjórnvalda að skapa stöðugleika í efnahagsmálum og takast á við viðvarandi verðbólgu og hátt vaxtastig. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland kynntu áformin á blaðamannafundi í gær.RÚV / Ragnar Visage