Security News

Cybersecurity news aggregator

🏥
INFO News Mbl Innlent

Styttist í opnun í Urðarhvarfi

  • What: New healthcare facility opening in Urðarhvarfi
  • Impact: Healthcare infrastructure development
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2026 | 20:45 Styttist í opnun í Urðarhvarfi Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, segir húsnæðið svo gott sem tilbúið í Urðarhvarfi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Jóhann Björnsson [email protected] Setja bókamerki Heilsuvernd stefnir að opnun hjúkrunarrýma í Urðarhvarfi 16 í Kópavogi í þessum mánuði. Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, segir undirbúning ganga vel og vonast sé til að hægt verði að taka fyrstu rýmin í notkun síðar í mánuðinum. Um er að ræða svonefnd biðrými sem ætlað er að létta á þeim fráflæðisvanda sem verið hefur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Frétt af mbl.is „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Alls eru þetta 100 rými í Urðarhvarfi sem tekin verða í notkun í áföngum. Teitur segir að frá því að fyrsta rýmið verði opnað í Urðarhvarfi geti tekið allt að átta vikur að nýta þau öll til fulls með þeirri nálgun sem unnið er með í dag. Iðnaðarmenn að störfum í Urðarhvarfi í gær við að setja upp glerhurðir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Brugðist við neyðarástandi Eins og fram hefur komið í fréttum hefur neyðarástand ríkt á bráðamóttöku Landspítalans. Stjórnendur spítalans og starfsmenn bráðamóttökunnar óskuðu eftir því við stjórnvöld að farið yrði í bráðaaðgerðir til að fjölga rýmum. Var óskað eftir því að allt að 50 sjúklingar yrðu færðir annað. Frá miðjum febrúar sl. hefur tekist að útskrifa álíka marga sjúklinga en það er ekki talið duga. „Allir eru af vilja gerðir til að leysa þennan vanda sem við þekkjum svo vel. Húsnæðið hefur verið afhent til notkunar. Við erum komin með rekstrarleyfi frá Heilbrigðiseftirlitinu og embætti landlæknis tók húsnæðið út í vikunni og við bíðum rekstrarleyfis þaðan. Við reynum að vinna þetta eins hratt og mögulegt er, en þetta tekur allt sinn tíma,” segir Teitur, en skjólstæðingar Landspítalans munu hafa forgang í umrædd rými. Rafvirki dregur í lagnir í einu herbergjanna hjá Heilsuvernd í Kópavogi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Að sögn Teits gengur vel að ráða starfsfólk. Búið sé að ráða yfir 100 einstaklinga, en alls sóttu ríflega 900 manns um þegar Heilsuvernd óskaði eftir starfskröftum og enn er verið að ráða í stöður. „Beðið var um að flýta opnun en ákveðnir tímarammar eru á þessu við pöntun á búnaði, rúmum og öðrum tækjum og tólum. Það styttist í að búnaður verði fluttur inn, en við höfum meðal annars þurft að grípa til þess ráðs að fá búnað lánaðan annars staðar frá og erum í afar góðu samstarfi við Landspítala, heilbrigðisráðuneytið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið, auk Framkvæmdasýslunnar. Þannig að það eru allir að leggjast á eitt núna,“ segir Teitur, sem vonast til að hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi verði fullnýtt í maí nk. mbl.is/Eggert Jóhannesson mbl.is/Eggert Jóhannesson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Styttist í opnun í Urðarhvarfi Wrexham gaf Chelsea alvöru leiki Meloni sendir freigátu til Mið-Austurlanda Naumt tap Orra og félaga gegn Atlético Útlandafrí Friðriks Danakonungs vekja athygli Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldingar á höfuðborgarsvæðinu: Gefa út viðvörun Telja auglýsingu vera löglega Borgin kreistir markaðinn Fær tilkynningar þegar skotflaugar stefna á Kænugarð Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Andlát: Özur Lárusson Vænir Ölmu Möller um lygar Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Styttist í opnun í Urðarhvarfi Wrexham gaf Chelsea alvöru leiki Meloni sendir freigátu til Mið-Austurlanda Naumt tap Orra og félaga gegn Atlético Útlandafrí Friðriks Danakonungs vekja athygli Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Bretar búa flugmóðurskip til brottfarar Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Einn dalur verðmætari en hundrað Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Andlát: Özur Lárusson Vænir Ölmu Möller um lygar Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason

Share this article