Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnaður í nærri tvo áratugi

Read Full Article →

Rossopomodoro, sem rekur samnefndan veitingastað í miðbæ Reykjavíkur, hagnaðist um 50 milljónir króna árið 2024 en árið áður nam hagnaðurinn 54 milljónum. Veitingastaðurinn hefur verið rekinn með hagnaði allt stofnun félagsins árið 2006, að faraldursárinu 2020 undanskildu þegar 3 milljóna tap var af rekstrinum. Frá árinu 2014 nemur samanlagður hagnaður 385 milljónum króna. Árið 2024 námu tekjur Rossopomodoro 332 milljónum króna, sem er samdráttur frá fyrra ári þegar tekjurnar námu 349 milljónum. Kostnaðarverð seldra vara lækkaði um 9% milli ára og nam 68 milljónum. Laun og launatengd drógust sömuleiðis saman um 3% og námu 153 milljónum. Annar rekstrarkostnaður nam 50 milljónum. Eignir félagsins í árslok 2024 voru bókfærðar á 93 milljónir króna og eigið fé nam 57 milljónum. Stjórn leggur til að 50 milljónir verði greiddar í arð. Félagið er í jafnri eigu Lárusar Guðmundssonar veitingamanns, Karítasar Lárusdóttur og Bjarnar Óla Ketilssonar. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article