Ísland tapaði með níu marka mun á útivelli fyrir Svartfjallalandi í kvöld, 33-24, í undankeppni EM kvenna í handbolta. Ísland lenti mest þremur mörkum undir í fyrri hálfleik en vann þann mun upp og staðan var jöfn í hálfleik, 13-13. Ísland náði svo tveggja marka forystu í upphafi seinni háfleiks og hefði geta komist þremur mörkum yfir en svo kom 9-0 kafli hjá Svartfellingum sem gerðu út um leikinn og Ísland skoraði ekki í tólf mínútur. „Slæmi kaflinn mjög slæmur“ „Í 40 mínútur vorum við að spila virkilega vel en svo er slæmi kaflinn mjög slæmur. Við förum illa með boltann og færi og erum bara í töluvert miklu basli sem við náum okkur aldrei út úr. Þar af leiðandi töpuðum við þessu of stórt miðað við hversu mikið stelpurnar lögðu í þetta,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson í samtali við RÚV í kvöld. 100 góðar mínútur gegn mjög sterku liði Arnar bendir á að íslenska hafi verið að spila á mjög erfiðum útivelli við mjög gott lið. „Vissulega hefðum við vilja gera betur síðustu 20 mínúturnar,“ segir Arnar sem er heilt yfir ánægður með frammistöðuna í þessum tveimur leikjum leikjum gegn Svartfjallalandi. „Þetta eru 100 góðar mínútur gegn mjög sterku liði.“ Arnar segir að leikmenn muni draga mikinn lærdóm af þessum leik. „Við erum með mjög ungt lið, ungan hóp. Þær eiga eftir að lenda í svipuðum aðstæðum aftur og þá eru þær búnar að upplifa þetta og þá tökum við það með okkur.“ Ísland í botnsætinu en „er í okkar höndum“ Portúgalar unnu Færeyinga 25-23 á heimavelli og þar með lauk fjórðu umferð í þessum riðli. Svartfjallaland er efst með 6 stig og svo koma Færeyjar og Portúgal með 4 stig. Ísland er á botni riðilsins með 2 stig. Undankeppnin er leikin í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sig á mótið auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti. Komi til útreikninga fyrir þriðja sæti riðilsins stendur Ísland vel að vígi vegna sigursins á heimavelli gegn Svartfjallalandi. „Við erum eftir þennan glugga búin að koma okkur í þá stöðu að þetta er í okkar höndum. Möguleikarnir eru klárlega til staðar. Þessi sigur á miðvikudaginn kemur okkur aftur inn í þennan möguleika á að komast á þetta stórmót sem við höfum stefnt að.“