Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóþekja á vegum úti

Read Full Article →

Það er víða varasöm færð.RÚV / Ágúst Ólafsson Á Suðvesturlandi er snjóþekja á mörgum vegum, til dæmis í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Hálka er á Suðurstrandarvegi og hálkublettir á Reykjanesbraut og Hellisheiði. Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja á öllum helstu leiðum. Þæfingsfærð er á Bröttubrekku og þungfært á Fróðárheiði. Hálka er á öllum helstu fjallvegum norðanlands. Þungfært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Hálka er á flestum leiðum á Austurlandi, þæfingsfærð er á Hárekstaðaleið en snjóþekja á Fagradal, Fjarðarheiði og á Borgarfjarðarvegi. Snjóþekja eða hálkublettir eru á öllum leiðum á Suðausturlandi. Nánari upplýsingar um færð á vegum má finna á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is .

Share this article