Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skoða aukna raf­orku­fram­leiðslu

Read Full Article →

Háblær ehf., sem rekur vindmyllur í Þykkvabæ, tapaði 45 milljónum króna árið 2024, en um var að ræða fyrsta heila rekstrarárið í raforkuframleiðslu. Tekjur námu 39 milljónum en rekstrarkostnaður nam 51 milljón. Bókfært verð vindorkuversins var 621 milljón í lok árs 2024. Að því er segir í ársreikningi er félagið með það til skoðunar að auka raforkuframleiðslu sína. Félagið er í 68% eigu Qair Ísland og Eignarbjarg ehf., dótturfélag Arion banka, á eftirstandandi hlut. Lykiltölur / Háblær ehf. 2024 2023 Vörusala 39 11 Eigið fé 206 251 Eignir 643 658 Afkoma -45 -24 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article