Húrra Reykjavík hefur ákveðið að loka verslunum sínum í Kringlunni og Smáralind. Greint er frá þessu á Facebook-síðu félagsins. Fataverslunin segist ætla að einbeita sér nú að verslun sinni að Hverfisgötu. Húrra Reykjavík opnaði verslun í Kringlunni á seinni árshelmingi 2024 og aðra verslun í Smáralind haustið 2025. Í færslunni segir fataverslunin að það sé komið að því að einfalda hlutina og fara aftur að rótunum. „Húrra byrjaði sem hugmynd tveggja vina sem vildu bjóða upp á þann fatnað og skó sem þeim fannst vanta. Verslunin á Hverfisgötu verður áfram hjartað í Húrra og áherslan áfram á fallegar vörur í afslöppuðu umhverfi með persónulegri þjónustu.“ Smásala hafi almennt tekið miklum breytingum frá því að félagið opnaði Húrra árið 2014. „Að reka sjálfstæða íslenska verslun hefur aldrei verið auðvelt - en það hefur alltaf verið þess virði.“ „Þetta er ekki endirinn. Við erum að draga saman seglin og undirbúa Húrra fyrir næsta kafla.“ Sjá einnig Húrra tapar 16 milljónum JS Reykjavík ehf., rekstrarfélag Húrra Reykjavík, er í jafnri eigu Jóns Davíðs Davíðssonar og Sindra Snæs Jenssonar.