Verslanafyrirtækið Húrra Reykjavík hættir starfsemi undir lok þessa mánaðar. Þá verður verslun fyrirtækisins við Hverfisgötu í Reykjavík lokað. Tilkynnt var um þetta í morgun, mánuði eftir að fyrirtækið greindi frá því að það ætlaði að hætta verslanarekstri í Smáralind og Kringlunni. Þegar tilkynnt var um lokun verslana fyrirtækisins í Smáralind og Kringlunni var sagt að fyrirtækið ætlaði að einbeita sér að rekstri verslunarinnar í miðbæ Reykjavíkur. Mánuði síðar er sú staða breytt. „Eftir langa og eftirminnilega vegferð höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka Húrra og versluninni okkar við Hverfisgötu í lok apríl. Það er erfitt að kveðja eitthvað sem hefur verið svona stór hluti af lífi okkar en allt hefur sitt upphaf og endi,“ segir á Facebook-síðu fyrirtækisins. Fyrsta verslun Húrra Reykjavíkur var opnuð á Hverfisgötu 2014. Reglulega mynduðust langar raðir við verslunina þegar vinsælir skór í takmörkuðu upplagi voru teknir til sölu, svo sem Ye-skór sem nutu mikilla vinsælda.