Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Húrra lokar

Read Full Article →

Smartland Mörtu Maríu | Tíska | mbl | 8.4.2026 | 9:51 | Uppfært 11:16 Húrra lokar Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Davíðsson eru stofnendur Húrra Reykjavíkur en nú er komið að kveðjustund. mbl.is/Valgarður Gíslason Edda Gunnlaugsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fatastíllinn Allir að leita að fötum eins og Carolyn Bessette klæddist Fræga fólkið með margra milljóna króna úr Litasamsetningin sem kemur öllum á óvart Opnuðu átta verslanir á sextán dögum „Við erum að fara að gera allt vitlaust í þessum kápum“ » Fleiri tengdar fréttir Verslun á Íslandi Húrra lokað í Smáralind og í Kringlunni Húrra Reykjavík opnar í Smáralind Marteinn nýr framkvæmdastjóri Húrra Kynntust í áttunda bekk og eiga nú saman fyrirtæki Tískuvöruverslunin Húrra Reykjavík lokar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu á samfélagsmiðlum. „ Kveðjustund. Eftir langa og eftirminnilega vegferð höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að loka Húrra og versluninni okkar við Hverfisgötu í lok apríl. Það er erfitt að kveðja eitthvað sem hefur verið svona stór hluti af lífi okkar en allt hefur sitt upphaf og endi. Húrra byrjaði sem hugmynd tveggja vina sem fannst vanta ákveðnar vörur, vörumerki og upplifun í Reykjavík — en varð að einhverju sem tilheyrði miklu fleirum. Húrra hefur í yfir áratug sett svip sinn á borgarlífið og verið hluti af verslunar- og tískusenu Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu á Instagram. „Við erum ótrúlega stoltir af því sem við byggðum og fullir þakklætis. Húrra varð vettvangur fyrir stíl, sköpunargleði, hugmyndir og tengsl og áttu viðskiptavinir, samstarfsaðilar og síðast en ekki síst starfsfólk Húrra stóran þátt í að móta það samfélag sem skapaðist í kringum reksturinn. Næstu vikur verða þær síðustu í Húrra sögunni. Verslunin verður opin á meðan birgðir endast og hvetjum við alla til að kíkja við, versla eitthvað fallegt í síðasta sinn og kveðja þannig Húrra Reykjavík með stæl. Allar vörur verða á helmings afslætti. Við viljum nýta tækifærið til að þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína í verslunina í Húrra í gegnum árin. Stuðningurinn, tryggðin og velvildin er það sem hefur haldið okkur gangandi allan þennan tíma.“ View this post on Instagram A post shared by Húrra Reykjavík (@hurrareykjavik) „Verðum við ekki að fara að gera eitthvað af viti?“ Stofnendur verslunarinnar eru þeir Jón Davíð Davíðsson og Sindri Snær Jensson. Þeir voru rétt skriðnir yfir þrítugt þegar þeir stofnuðu verslunina en báðir höfðu þeir meðal annars starfað hjá NTC hf. árin áður og þekktu því tísku- og verslunarheiminn hér á landi vel. Fyrsta verslun Húrra opnaði á Hverfisgötu árið 2014 og kom sem ferskur andblær inn í flóru verslanna hér á landi. Verslunin varð strax mjög vinsæl og sérstaklega meðal yngra fólks sem sótti í sjaldséða strigaskó og sportlegri fatnað. Húrra byrjaði sem karlafataverslun en fljótlega fóru kvenmannsföt að bætast við. Síðar stækkaði verslunin og færði sig neðar á Hverfisgötuna. Sindri og Jón Davíð áttu svo eftir að opna verslun í Kringlunni, Smáralind og í Leifsstöð. Húrra bauð upp á fatamerki sem ekki fengust annars staðar hér á landi. Sem dæmi má nefna Stone Island, Sporty & Rich, Common Projects, Opéra Sport og Drôle de Monsieur. Eins og áður var tekið fram var úrvalið af strigaskóm einstaklega breitt og kepptust þeir við að bjóða upp á áhugavert úrval fyrir þá sem vildu versla öðruvísi skó en aðrir. Í viðtali við ViðskiptaMoggann árið 2018 segja þeir frá því þegar hugmyndin að versluninni kviknaði en það var um jólin árið 2013. Sindri var þá búsettur í Kaupmannahöfn og starfaði sem verslunarstjóri. „Ég var heima í jólafríinu mínu og við Jón eyddum öllum tímanum í djamm og vitleysu. Við vorum að tala saman þegar hann keyrði mig upp á flugvöll og við litum á hvor annan og sögðum: „Verðum við ekki að fara að gera eitthvað af viti?“ Upp úr því kom hugmyndin að opna fatabúð. Ég var búinn að vinna í tískuverslunum allan minn starfsferil og þetta var ást við fyrstu sýn,“ sagði Sindri í viðtalinu. Frétt af mbl.is Húrra setur sterkan svip á miðbæ Reykjavíkur Frétt af mbl.is Húrra lokað í Smáralind og í Kringlunni Tengdar fréttir Fatastíllinn Allir að leita að fötum eins og Carolyn Bessette klæddist Fræga fólkið með margra milljóna króna úr Litasamsetningin sem kemur öllum á óvart Opnuðu átta verslanir á sextán dögum „Við erum að fara að gera allt vitlaust í þessum kápum“ » Fleiri tengdar fréttir Verslun á Íslandi Húrra lokað í Smáralind og í Kringlunni Húrra Reykjavík opnar í Smáralind Marteinn nýr framkvæmdastjóri Húrra Kynntust í áttunda bekk og eiga nú saman fyrirtæki Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Hreinlega algjör skandall“ Húrra lokar Tinna selur 225 milljóna einbýli í 101 Instagram: Birnir og Birgitta Líf nutu páskanna Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík Jóhann Páll og Anna Bergljót eignuðust son Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Kona er brjáluð út í manninn sinn og leitar ráða Eru „Ozempic“ tennur þekkt fyrirbæri? Eitt fínasta hús Íslands selt á 290 milljónir Instagram: Birnir og Birgitta Líf nutu páskanna Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík Tinna selur 225 milljóna einbýli í 101 Kona er brjáluð út í manninn sinn og leitar ráða Jóhann Páll og Anna Bergljót eignuðust son Eitt fínasta hús Íslands selt á 290 milljónir Eru „Ozempic“ tennur þekkt fyrirbæri? Flottustu jakkarnir fyrir vorið Fræga fólkið með margra milljóna króna úr Jökull Júlíusson orðinn einhleypur Eitt fínasta hús Íslands selt á 290 milljónir Eru „Ozempic“ tennur þekkt fyrirbæri? Instagram: Birnir og Birgitta Líf nutu páskanna Ikea opnar boltaland fyrir fullorðna Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Tinna selur 225 milljóna einbýli í 101 Kona er brjáluð út í manninn sinn og leitar ráða Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík „Stærsta högg sem ég hef nokkurn tíma fengið“ Fleira áhugavert Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Þekkt leikkona styður Grindavík Mest lesið Í gær Í vikunni „Hreinlega algjör skandall“ Húrra lokar Tinna selur 225 milljóna einbýli í 101 Instagram: Birnir og Birgitta Líf nutu páskanna Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík Jóhann Páll og Anna Bergljót eignuðust son Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Kona er brjáluð út í manninn sinn og leitar ráða Eru „Ozempic“ tennur þekkt fyrirbæri? Eitt fínasta hús Íslands selt á 290 milljónir Instagram: Birnir og Birgitta Líf nutu páskanna Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík Tinna selur 225 milljóna einbýli í 101 Kona er brjáluð út í manninn sinn og leitar ráða Jóhann Páll og Anna Bergljót eignuðust son Eitt fínasta hús Íslands selt á 290 milljónir Eru „Ozempic“ tennur þekkt fyrirbæri? Flottustu jakkarnir fyrir vorið Fræga fólkið með margra milljóna króna úr Jökull Júlíusson orðinn einhleypur Eitt fínasta hús Íslands selt á 290 milljónir Eru „Ozempic“ tennur þekkt fyrirbæri? Instagram: Birnir og Birgitta Líf nutu páskanna Ikea opnar boltaland fyrir fullorðna Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Tinna selur 225 milljóna einbýli í 101 Kona er brjáluð út í manninn sinn og leitar ráða Svali leitar að íbúð til leigu í Reykjavík „Stærsta högg sem ég hef nokkurn tíma fengið“ Fleira áhugavert Íranar lýsa yfir sigri Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Afstaðan í andstöðu við kjósendur Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Pistlar » Of góð/ur fyrir vinnustaðinn þinn? Hildur Jakobína Gísladóttir Aldur er ekkert annað en tala á blaði Linda Sigríður Baldvinsdóttir Að þora að sýna veikleika er styrkleiki Valgeir Magnússon Leyfðu þér... Ágústa Johnson Sköpun sjálfsmyndarinnar Lára Guðrún Sigurðardóttir Lífsklukkan og lífsflóran – hvernig innri taktur líkamans mótar svefn, meltingu og líðan Birna G. Ásbjörnsdóttir "Fibermaxxing" er mótefnið við gjörunnum mat Guðrún Kristjánsdóttir Innrauður hiti og vellíðan á líkama og sál Unnur Pálmarsdóttir Sól í samstöðu við 3I-Atlas Guðrún Bergmann Setjum geðheilbrigðismál í forgang Ásdís Ósk Valsdóttir Fræolíur: Hættan sem leynist í mataræðinu þínu Júlía heilsumarkþjálfi Gjafir myrkursins Guðrún Arnalds Spurt og svarað Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Brynja Björk Harðardóttir tannlæknir svarar spurningum lesenda Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda Elínrós Líndal einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi svarar spurningum lesenda Theodór Francis Birgisson Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins Lögfræðistofa Reykjavíkur svarar spurningum um lögfræðileg mál Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir svarar spurningum lesenda Tinna Bryde fasteignasali svarar spurningum lesenda

Share this article