Flest virkjunarmannvirki hafa verið undanþegin fasteignaskatti en því á að breyta með nýju frumvarpi. Tekjur sveitarfélaga aukast um milljarða verði breytingin samþykkt en í samráðsgátt er fjöldi athugasemda. Storm Orka sem áformar vindorkuver skammt frá Búðardal fagnar því að nærsamfélög eigi að fá meiri ávinning af virkjunum en harmar að það skuli gert með nýjum skatti. Það eigi eftir að hækka verð á raforku og um leið verð á vörum sem framleiddar eru með raforku og þannig ýta undir verðbólgu. Norðurál bendir á að langtímasamningar séu í gildi við stórnotendur og því yrði kostnaði í fyrstu velt yfir á almenna markaðinn þar til kæmi að endursamningum við stórnotendur. Grunnupplýsingar vanti og útfærslan óhagstæð smærri virkjunum Qair Ísland sem þróar vindorku gerir líka athugasemdir. Fyrirtækið á Arctic Hydro sem rekur vatnsaflsvirkjanir og bendir á að útfærslan geti mismunað fyrirtækjum og orkukostum og komi verst út fyrir smærri virkjanir. Heildarfasteignagjöld allra virkjana landsins myndu fjórfaldast en gjöldin á virkjanir Arctic Hydro myndu hins vegar meira en nífaldast. Slík mismunun sé óásættanleg. Reyndar sé margt enn óljóst um hvernig eigi að áætla fjárstreymi frá virkjunum sem nýju fasteignagjöldin miðast við. Tekjuskerðing yrði forsendubrestur Fleiri telja grunnupplýsingar vanta í frumvarpið. Þar er ákvæði um tekjuþak sem á að koma í veg fyrir að fámenn sveitarfélög fái ofurtekjur og verður tekjum umfram þakið útdeilt í gegnum jöfnunarsjóð. Þetta á líka að gilda um fasteignagjöld af verksmiðjuhúsum stóriðju. Sveitarfélög gagnrýna að þau viti ekki hvert tekjuþakið verður og hvort og hve miklar tekjur þau muni mögulega missa inn í jöfnunarsjóð. Líklegt er að þetta myndi bitna á Hvalfjarðarsveit sem innheimtir mikil fasteignagjöld af stóriðju á Grundartanga. Fjarðabyggð með álverið í Reyðarfirði hefur líka áhyggjur af þessu og bendir á að sveitarfélög hafi lagt í miklar fjárfestingar vegna stóriðjunnar. Tekjuskerðing yrði forsendubrestur og áhrif tekjuþaksins á sveitarfélög hafi ekki verið metin. Múlaþing, sem ætti að fá auknar tekjur með frumvarpinu, hvetur til að þetta hvalrekaákvæði á stóriðjusveitarfélög verði fellt út enda sé það óskylt mál og geti tafið samþykkt frumvarpsins. Hér má sjá þær umsagnir sem borist hafa um frumvarpið í samráðsgátt.