Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vara við aukinni skattheimtu á orkumannvirki

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 17.3.2026 | 10:48 Vara við aukinni skattheimtu á orkumannvirki Orkuverið í Svartsengi. Samtök atvinnulífsins vara við því að frumvarpið feli í sér verulega aukna skattheimtu á orkumannvirki til þess fallna að skerða samkeppnishæfni og draga úr frekari fjárfestingum í uppbyggingu orkuframleiðslu. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Skattar á Íslandi „Tugþúsundir króna í aukinn skatt á ári“ Búsettur erlendis en þarf að greiða skatta á Íslandi Frestur til að framlengja nýtingu að renna út Bunki af fyrirspurnum vegna vaxtabóta Harma birtingu álagningarskráa » Fleiri tengdar fréttir Samtök atvinnulífsins vara við því að fyrirliggjandi frumvarp til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati feli í sér verulega aukna skattheimtu á orkumannvirki til þess fallna að skerða samkeppnishæfni og draga úr frekari fjárfestingum í uppbyggingu orkuframleiðslu. Samtökin hafa tekið til umsagnar drög að frumvarpinu sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda 20. febrúar sl. (mál nr. S-51/2026). Í greinargerð með drögunum segir að tilgangur frumvarpsins sé tvíþættur; annars vegar að innleiða hugtakið rýmiseignir í íslenskan rétt og festa þær í sessi sem sjálfstæðar fasteignir í fasteignaskrá og hins vegar að afnema gildandi undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Í frumvarpinu er rýmiseign skilgreind sem þrívítt afmarkað rými ætlað utan um mannvirki, mannvirkjakerfi, ásamt réttindum sem þeim fylgja, sem heimilt er að reisa samkvæmt mannvirkja- og skipulagslögum. Stöðvarhús Hvammsvirkjunar skv. teikningum. Bygging virkjunarinnar hefur verið í nokkurri óvissu. Tölvumynd/Landsvirkjun Nærsamfélög njóti ávinnings af uppbyggingu Þá segir að myndun rýmiseignar sé heimil þegar: viðkomandi rými nær yfir eða undir aðra fasteign eða mannvirki innan rýmisins eru varanlega skeytt við eignarlaust land eða sjávarbotn, mannvirki og tilheyrandi réttindi innan rýmisins mynda eina heildstæða einingu, svo sem orkuvinnslukerfi, samgöngumannvirki eða verksmiðjur. Áfram sé hægt að nýta þann hluta fasteignar sem liggur yfir eða undir rýmiseigninni, í öðrum og sjálfstæðum tilgangi. Rýmiseign telst samkvæmt frumvarpinu tilheyra því sveitarfélagi þar sem mesta hlutfall rýmis eignarinnar liggur. Séu hlutföll jöfn milli sveitarfélaga telst rýmiseign tilheyra því sveitarfélagi þar sem rúmfræðileg miðja rýmisins liggur. Sveitarfélag sem rýmiseign tilheyrir fer með hlutverk og skyldur þess sveitarfélags sem mælt er fyrir um gagnvart rýmiseigninni í heild sinni. Samtökin taka í umsögn sinni undir mikilvægi þess að nærsamfélög orkumannvirkja njóti ávinnings af uppbyggingu orkuframleiðslu í nærumhverfi sínu. Þau vara hins vegar, sem áður segir, við því að frumvarpið feli í sér verulega aukna skattheimtu á orkumannvirki. Hágöngulón á Holtamannaafrétti. Uppistöðulón geta verið í landi í eigu annarra en þess sem rekur orkuvinnslu. Hugtakinu rýmiseign er ætlað að ná yfir flókin kerfi á borð við uppistöðulón eða jarðgöng sem hvíla undir mörgum fasteignum og ýmis önnur kerfi. mbl.is/RAX Varla í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda Í umsögninni segir að samtökin hafi lengi kallað eftir aukinni orkuframleiðslu á Íslandi og að nægt framboð af grænni orku á samkeppnishæfu verði sé forsenda verðmætasköpunar og hagsældar. Vísa samtökin til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá desember 2024 um aðgerðir til að auka orkuöflun, styrkja flutningskerfi og bæta orkunýtni. Samtökin telja frumvarpið varla í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda um aukna orkuframleiðslu heldur þvert á móti og að aukin skattheimta sé frekar til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á uppbyggingu orkuframleiðslu. Í umsögninni segir þá að algjört afnám undanþágu frá fasteignaskatti á einu bretti muni óhjákvæmilega leiða til hærra raforkuverðs fyrirtækja og heimila sem hafi áhrif á vísitölu neysluverðs og dragi úr samkeppnishæfni og fjárfestingu. Tengdar fréttir Skattar á Íslandi „Tugþúsundir króna í aukinn skatt á ári“ Búsettur erlendis en þarf að greiða skatta á Íslandi Frestur til að framlengja nýtingu að renna út Bunki af fyrirspurnum vegna vaxtabóta Harma birtingu álagningarskráa » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Bókadómur: Dátadraumurinn og Fröken Dúlla Sigurður Már Jónsson Fá íbúar Kúbu frelsi? Fleira áhugavert Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Allir neita sök í Reykholtsmáli Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Gerðu árás á sendiráð Bandaríkjanna í Írak Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Breytt stýrivaxtaspá vegna stríðs Spá 0,25 prósentustiga vaxtahækkun Nordea segir upp 1.500 manns Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Forstjóraskipti hjá Orkusölunni Pistlar » Sigurður Már Jónsson Bókadómur: Dátadraumurinn og Fröken Dúlla Sigurður Már Jónsson Fá íbúar Kúbu frelsi? Fleira áhugavert Náðu ekki lengra en út að vegamótum Tekjutap líklega vegna pakka Segjast hafa fellt Larijani Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Breytt stýrivaxtaspá vegna stríðs Spá 0,25 prósentustiga vaxtahækkun Nordea segir upp 1.500 manns Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Forstjóraskipti hjá Orkusölunni

Share this article