Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.3.2026 | 8:21 Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Ólöf gerir ráð fyrir að barnaverndarþjónustan fari að senda inn umsóknir fyrir drengi sem þurfa á meðferð að halda. Samsett mynd/Karítas/Stjórnarráðið Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Einn í meðferð á nýju meðferðarheimili Skýrsla vegna brunans birt síðar í mánuðinum Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra » Fleiri tengdar fréttir Eftir um 700 daga bið var meðferðarheimilið Lækjarbakki opnað á ný í Gunnarsholti á Rangárvöllum á föstudag, þegar fyrsti skjólstæðingurinn var innritaður. Drengur sem beðið hafði eftir langtímameðferð vegna fíknivanda um tíma. Í Gunnarsholti er rými fyrir sex drengi, en tveir til viðbótar eru væntanlegir á næstu dögum. Töluverður uppsafnaður vandi hefur skapast frá því Lækjarbakka var lokað vegna myglu í apríl 2024 og gerir forstjóri Barna- og fjölskyldustofu ráð fyrir að barnaverndarþjónustan fari strax að senda inn umsóknir fyrir fleiri drengi sem þarfnast langtímameðferðar. Slík meðferð er að lágmarki sex mánuðir. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Einhverjir foreldrar hafa hins vegar brugðið á það ráð að senda syni sína í meðferð í Suður-Afríku vegna úrræðaleysisins hér á landi, og hafa að minnsta kosti þrír íslenskir drengir verið þar í langtímameðferð frá því síðasta haust. „Þetta er búið að taka langan tíma, lengri tíma en við bjuggumst við. Þannig þetta er mikið gleðiefni. Við erum búin að vera með starfsfólk til taks frá 1. janúar,“ segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, í samtali við mbl.is. Í fyrstu var stefnt að opnun síðasta haust, en framkvæmdir drógust á langinn og hefur opnun því ítrekað verið frestað. Frétt af mbl.is „Leyfi mér næstum að segja að það verði bylting“ Aðeins lokaúttekt eftir Helmingur starfsfólksins starfaði á Lækjarbakka áður en heimilinu var lokað á sínum tíma og hefur því reynslu af meðferðarstarfinu, en hinn helmingurinn kemur nýr inn. Allir starfsmenn hafa þó fengið þjálfun. Ólöf segir öll leyfi fyrir starfsemi meðferðarheimilis í Gunnarsholti komin í hús og að aðeins eigi eftir að fara fram lokaúttekt. „Öryggisúttektin er komin, hún var án athugasemda, inni í því eru brunavarnir. Svo fengum við starfsleyfi, en lokaúttekt verður gerð í maí,“ útskýrir hún og tekur fram að starfsleyfi hefði ekki fengist ef öryggisúttekt hefði ekki verið í lagi. Eina sem eftir sé fyrir lokaúttekt sé að skipta um loftaplötur í eldhúsi. Frétt af mbl.is Sonurinn allt annað barn: „Brosið er orðið einlægt“ Ekki hægt að fylla öll rýmin í einu Líkt og áður sagði var Lækjarbakka lokað vegna myglu í byrjun apríl árið 2024. Í tæp tvö ár hefur ekkert langtímameðferðarheimili fyrir drengi því verið starfrækt hér á landi, þrátt fyrir brýna þörf fyrir slíkt úrræði. Lækjarbakki heldur nafninu þrátt fyrir nýja staðsetningu í Gunnarsholti, en þar er rými fyrir sex drengi. Nú hefur einn drengur hafið þar meðferð og tveir til viðbótar væntanlegir, en Ólöf segir ekki hægt fylla öll rými á einu bretti. „Við erum aðeins að sjá hvernig húsið virkar. Við þurfum að aðlaga okkur. Það er ekki hægt að taka alla á sama tíma. Það er einn komin núna og eftir nokkra daga kemur annar, en það eru tveir sem bíða. Svo bíðum við eftir fleiri umsóknum.“ Frétt af mbl.is „Þá brotnaði ég niður og fór að hágráta“ Alltaf betra að fara út á land Um er að ræða drengi sem hafa lokið átta til tólf vikna greiningu og meðferð á meðferðarheimilinu Blönduhlíð á Vogi og eru því búnir að fara í gegnum styttra meðferðarúrræði. Einhverjir þeirra hafa verið vistaðir á meðferðardeild Stuðla til að brúa bilið fram að opnun Lækjarbakka, en hvorki húsnæðið né staðsetningin hentar börnum í langtímameðferð. „Það hefur verið erfið staða í meðferðarmálum. Við vonum að þetta liðki fyrir. Það er uppsafnaður vandi þannig ég á von á að barnaverndarþjónustan sendi inn umsóknir fyrir fleiri. Við höfum allavega þrjú pláss laus,“ segir Ólöf og vísar til þeirra rýma sem ekki verða fyllt á næstu dögum. „Við höfum verið að bjarga okkur með meðferðardeildinni á Stuðlum en það er auðvitað ekki það sama að vera með þá úti á landi og inni í bænum. Landfræðilega hefur það öðruvísi áhrif að hafa meðferðarheimili úti á landi. Það er ekki það sama að vera í nærumhverfi við nærsamfélag þessara barna. Það er alltaf betra að fara aðeins lengra. Það er líka ákveðin kyrrð í því að vera úti á landi.“ Frétt af mbl.is Svona smygla börnin inn fíkniefnum Gríðarleg framför Formleg opnun meðferðarheimilisins verður 20. mars en Ólöf segir þau ekki hafa viljað bíða eftir því, heldur vilja innrita fyrsta skjólstæðinginn eins fljótt og mögulegt var. Um leið og starfsleyfið fékkst. Hún telur að opnun Lækjarbakka á ný muni hafa jákvæð áhrif á meðferðarkerfið í heild sinni. „Nú erum við að fá meðferðarheimili sem er algjörlega tekið í gegn með þarfir skjólstæðinganna að leiðarljósi. Þannig að það er líka nýbreytni að við séum með húsnæði sem algjörlega uppfyllir öll skilyrði um að vera meðferðarheimili og allar þær þarfir sem þarf fyrir svona starfsemi,“ segir Ólöf. „Ekki eins og var áður fyrr þegar það var bara fundið hús og því svo reddað. En núna er þetta út frá öllum stöðlum og tillit tekið til allra þátta. Sem er gríðarleg framför í þessum málum.“ Frétt af mbl.is „Hér þarf 350 milljónir til að gera það“ Að einhverju leyti lokað Lækjarbakki er ekki lokað úrræði í þeim skilningi að börn séu læst inni allan daginn, en Ólöf segir starfsmenn alltaf fylgja börnunum og að læst sé á nóttunni. Börnin hafa ekki frelsi til að ganga inn og út af heimilinu að vild. Það megi því segja að einhverju leyti sé um lokað úrræði að ræða. Skóli verður á staðnum að sögn Ólafar og afþreying fyrir drengina sem vistaðir eru á heimilinu.Hvernig afþreyingunni er háttað er metið eftir því hvar þeir eru staddir í meðferðinni hverju sinni. Meiri afþreying er í boði eftir því sem lengra líður á meðferðina. Dæmi um afþreyingu er fótboltaleikur með starfsmönnum, sundferðir eða ferðir í ræktina. Hvað meðferðarvinnu varðar þá kemur sálfræðingur á staðinn sem sér um einstaklingsmeðferð en einnig er notast við hópmeðferð. Þá er notast við áhugahvetjandi samtöl og áfallamiðaða nálgun þar sem reynt er að byggja upp traust gagnvart skjólstæðingum, sem Ólöf segir að allir séu með mikla áfallasögu á bakinu. Frétt af mbl.is Mikill þroskamunur: „Þetta var svo fallegt mamma“ Ýmislegt gengið á Ýmislegt hefur gengið á við að koma starfsemi Lækjarbakka fyrir á nýjum stað frá því honum var lokað fyrir tveimur árum. Það var fyrst í maí 2024 að tilkynnt var að búið væri að finna nýtt húsnæði undir meðferðarheimilið í Hamarskoti í Flóahreppi og átti starfsemi að hefjast á ný strax í júní það ár. Við undirritun leigusamningsins sagði Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, að þrotlaus vinna hefði farið í að finna meðferðarheimilinu stað. „Hver dag­ur sem líður án viðun­andi aðstöðu er ein­um degi of mikið, fyr­ir dreng­ina á meðferðar­heim­il­inu og einnig fjöl­skyld­ur þeirra,“ var haft eftir Ásmundi Einari í tilkynningu eftir undirritun. Meðferðarheimilið var aldrei opnað í Hamarskoti enda kom í ljós mygla þar líka. Frá því greint var frá lokun Lækjarbakka þann 6. apríl 2024 og þar til það var opnað á ný síðasta föstudag liðu hins vegar 700 dagar. 700 dagar án viðunandi aðstöðu, svo vísað sé til orða fyrrverandi ráðherra. Frétt af mbl.is Ráðherra gaf rangar upplýsingar um meðferðarheimili Samráðsleysi gerði íbúa óörugga Leigusamningurinn var reyndar undirritaður án þess að nokkuð samráð hefði verið haft um starfsemina við sveitarfélagið Flóahrepp. Lýsti sveitarstjórinn furðu sinni yfir algjöru samráðsleysi um málið í tölvupósti til Funa Sigurðssonar, framkvæmdastjóra meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, eftir að leigusamningur hafði verið undirritaður og greint frá málinu á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins. Í póstinum kom fram að skortur á upplýsingum væri að valda íbúum á svæðinu óöryggi og bent á að þrír bæir þar sem væri föst búseta væru í innan við 1 kílómetra fjarlægð frá Hamarskoti. Það var svo í nóvember árið 2024 að tilkynnt var að búið væri að finna Lækjarbakka nýja staðsetningu í Gunnarsholti. Það er því komið eitt og hálft ár síðan húsnæðið var tryggt, en við framkvæmdir kom meðal annars í ljós að asbest var í húsnæðinu sem hreinsa þurfti með viðeigandi hætti. Nú er aðeins lokaúttekt eftir og loks er hægt að senda drengi aftur í langtímameðferð hér á landi. Frétt af mbl.is „Ávinningurinn er svo mikill í mannslífum talið“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Einn í meðferð á nýju meðferðarheimili Skýrsla vegna brunans birt síðar í mánuðinum Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Íran velkomið að spila á HM segir Trump Vilja aukið samstarf í varnarmálum Jón og Hafdís ástfangin í skíðabrekkunni Flutningaskip rýmt á Hormússundi Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Helmingslíkur á gosi“ Telja sig vita orsök stórbrunans Skólastjórinn hættir alfarið Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Mest lesið Í gær Í vikunni Ósamstiga um nægan meirihluta Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Stúlkan er fundin Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyri

Share this article